Færsluflokkur: Ragga Nagli

Matseðill næstu mánaða

Jólin nálgast óðfluga og allt gúmmulaðið sem þeim fylgir. Ég veit ég hef sagt þetta áður... en ég get ekki beðið! Ég elska þennan tíma!

Nú hefur mikið matarát verið planað langleiðina fram í desember. Fyrstu helgina í nóvember tökum við famelían smá snúning og ætlum að halda hádramatíska þakkargjörðarhátíð á amríska vísu. Kalkúnn, graskersbaka, kirsuberjasósa, sætar kartöflur með sykurpúðum og allt. Helgina þar á eftir er árshátíð hjá vinnunni minni og önnur árshátíð í kjölfarið, helgina þar á eftir. Síðustu helgina í nóvember tökum við vinirnir okkur saman og höldum okkar árlegu vina-þakkargjörðarhátíð, 3 árið í röð. Aftur, kalkúnn, bökur og með því ásamt glápi á alla þakkarkjörðarþætti sjónvarpsseríunnar "Friends". Loks taka Bandaríkin við hjá mér og Palla, þar sem við komum til með að heimsækja þau í byrjun desember. Halló Cheesecake factory! Helgina eftir Bandaríkjaheimsókn kemur fyrsta fríhelgi frá plönuðu mataráti - nema við taki jólahlaðborð. Maður veit ekki! Þar á eftir líður ein helgi og vitið þið hvað svo.... jóóóliiin! Ohhh það er svo stutt í þetta maður!

Annað í fréttum

Kökudeigs jarða- og bláberjagrauturBanana- og peruskyr með dass af kanil

 

 

 

 

 

 

Smá svona...

Kjúllinn minn og sæta kartaflan

El harðfiskó

 

 

 

 

 

 

...örlítið af þessu... 

Prótein hnetukaka

Nautahakk og steikt grænmeti

 

 

 

 

 

 

... og það sem ég er að smjatta á núna!

Hnetusmjörsblandaður prótein búðingur

Nótt í hausinn á ykkur Sleeping


Settu hnetusmjör á þetta...

Er ekki allt betra með smá hnetusmjöri?

Hnetusmjör, prótein, vanilla, kanill og epli aðstoða hvert annað, og mig, í að útbúa þetta svaðalega gúmmulaði. Þetta er án efa uppáhalds millimálið mitt þessa dagana!

Hnetusmjörsblandaður prótein búðingur og eplaskeið

Hnetusmjörs prótein búðingur og ískalt brakandi epli. Fullkomin tvenna! Skúbba upp búðing með eplaskeiðinni, borða græðgislega og hananú! Orð fá ekki lýst hamingju minni yfir þessu snarli - eins og að svindla en með hreinni samvisku!


Svindlmáltíðin

Alltaf ein slík í viku. Alltaf jafn gaman þegar að henni kemur. Höfum þetta stutt og laggott. Ég, hér með, játa allar syndir laugardagsins umbúðalaust og sver við nafn hins alheilaga ræktarhúss, að mæta galvösk á mánudaginn og pína hverja einustu frumu í blússandi botn!

PIZZA

Veit ekki af hverju, en svindlið virðist aldrei vera fullkomið nema með einni slíkri! Hún vinnur sveitt ostapasta, hambó og doritos kjúlla, drukknandi í sósu, með bros á vör... ef pizzur væru með varir! Woundering

Eldbökuð pizza með rjómaosti, kjúlla, jalapeno, lauk, papriku og oregano

NAMMI

Súkkulaðihjúpað hnetumix, uppáhalds nammið verð ég að viðurkenna, og smá nóakropp. Doritos fyrir Palla þar sem súkkulaðiandinn virðist ekki leggja hann jafn stíft í einelti og mig!

Súkkulaðihjúpað hnetumix og nóakropp

Doritos

Loks kemur að langrþáðri stjörnu kvöldsins!

KÖKUDEIGSÍS

Svakalega dónalegt, hjemmelavet, hnetusmjörs kökudeig með súkkulaði- og butterscotch bitum og pecanhnetum. Hrært saman við ísbúðar-ís, nóakropp og dolce de leche! Guð minn almáttugur og allir englarnir!

Svaðalega dónalegt kökudeig, ís og nóakropp

Massífur kökudeigsís

Ég segi ekki meir og ætla að fá mér einn bita í viðbót! Ójá! Devil


Einfaldur og fljótlegur roastbeef hrísgrjónaréttur

Eins og ég hef alltaf sagt. Það þarf ekki að vera flókið til að bragðast vel! Einfalt, fljótlegt, bragðgott - mitt mottó takk fyrir góðan daginn. Byrja á því að sjóða hýðisgrjón í muss með smá salti.  Gulrót, laukur (rauð- og hvít-) og paprika er skorið niður í litla bita, sett í skál og hitað í örbylgju. Fátt um fínheit, í matargerð, á laugardegi Wink. (Þetta er sama grænmetisbland og ég notaði hér. Það svínvirkar með pipruðu kjötinu) Á meðan grænmetið er að örbylgjast, er kjötið rifið/skorið niður í litla bita.

Roastbeef hrísgrjónaréttur með grænmeti

Hella heitum grjónum og grænmeti í skál, ásamt rifnu kjötinu, og hræra saman. Kjötið fær í sig hita frá G-unum tveimur (grjón og grænmeti) og bragðið af því verður guðdómlegt. Engin olía, bara salt frá grjónum og pipar frá kjöti. 

Roastbeef hrísgrjónaréttur með grænmeti

Þetta gæti ekki verið einfaldara og jah... hollara? Allt syndsamlega 'löglegt' og ekkert nema gaman að bíta í. Að frátöldum 45 mínútunum sem það tók grjónin að sjóða, þá var ég 10 mínútur, frá byrjun til enda, að púsla þessu saman. Þó rétturinn sjálfur hafi verið hálf litlaus greyið, þá var þetta æðisleg máltíð og bragðið geggjað!


6 máltíðir yfir daginn

Sú fyrsta klukkan 06:00, á lyftingadögum - annars klukkan 9, og sú síðasta á milli 22:00 - 23:00 á kvöldin.

Morgunmatur - 09:00

Kökudeigs jarða- og bláberjagrautur.

Þessi var æði! Blandaði vanillupróteini (GRS-5), vanilludropum og kanil þykkt saman með vatni. Hrærði höfrum þar útí, bætti smá vatni við uppá áferð og svo loks frosnum jarða- og bláberjum! Yömmó!

Kökudeigs jarða- og bláberjagrautur

Millimál - 11:00

Banana- og eplaskyr með kanil. Draumur í ... plastboxi!

Banana- og eplaskyr með kanil

Banana- og eplaskyr með kanil

Hádegi - 13:40

Grillaður kjúlli og sæt kanilkartöflustappa (uppáhalds uppáhalds þessa stundina). Já, ég geri mér grein fyrir því að kanill hefur komið við sögu í fyrstu þremur máltíðum dagsins hjá mér!

Grilluð kjúllabringa, sæt kanilkartöflustappa og grænmó

Millimál - 16:00

Harðfiskurinn minn og hneturnar.

Harðfiskur

Pecanhnetur

Kvöldmatur - 19:00

Jújú, laukur, rauðlaukur, gulrætur og paprika steikt upp úr olíu, þangað til mjúkt. Saltað eilítið. Roastbeef rifið/skorið niður og bætt út á pönnuna rétt í endann til að hita. Ég tók pönnuna af hitanum og bætti svo kjötinu við, hrærði smá og voila! Þetta var æðislegt! Einfalt og bragðgott. Geri svona gums pottþétt aftur. Sætur laukur/gulrætur, smá saltbragð og piprað kjötið... mikið gott!

Roastbeef með steiktu grænmeti

Máltíð fyrir svefn - 23:00

Hnetusmjörsblandaður prótein 'búðingur'.

Próteini (GRS5), hnetusmjöri, kanil og vanilludropum blandað þykkt saman með vatni. Þessar blessuðu myndir gera því miður bragðinu, og áferðinni, ekki nein skil, myrkrið mín kæru. Blessað myrkrið. En ekki vera hrædd þó liturinn sé skelfilega óaðlaðandi - þetta er syyyyndsamlega gott snarl.

Hnetusmjörsblandaður prótein búðingur

Ljúfa líf og laugardagur á morgun! Ég bjó mér til kökudeig (eggjalaust) með súkkulaðibitum, hnetusmjöri og hnetum í gær og ætla að kaupa ísinn á morgun. Minn eigin kökudeigsís!! Hihiii...


Kjötætufjall

Mikið er rautt kjöt stundum yndislega fínt. Datt allt í einu í rauða kjöts gírinn og get ekki beðið eftir öllu gúmmulaðinu sem ég kem til með að útbúa úr ofurhakkinu sem ég keypti um daginn. Hrísgrjóna kjötbollur í tómatsósu, pottréttir, sugo, hambó...jeee haaw!

Til að fullnægja villimannslegri kjötlöngun minni heimsótti roastbeef samloka matardiskinn minn í kvöld - mínus brauðið! Raðaði káli og tómötum á disk. Krullaði upp og hrúgaði kjöti þar ofan á með sinnepi (dijon/honey vinegar dijon) inn á milli. Steikti loks tonn af lauk upp úr olíu og kom fallega fyrir ofan á kjötfjallinu mínu. Skreytti með steinselju og stakk mér til sunds! Úhhh viljið þið bara sjá...

Kjötætufjallið ásamt grænmeti, steiktum lauk og sinnepi

Þetta var svoooo gott!!! Sinnep, roastbeef og laukur eru alheilög þrenna sem bannað er að aðskilja! Þið sem ekki hafið tekið eftir því, þá er eitthvað dularfullt rauðlaukstímabil búið að yfirtaka græðgispúkann. Ekki neikvætt... svo mikið er víst!

Roastbeef fjall með grænmeti, steiktum lauk og sinnepi

Kjötætan hið innra hoppar og skríkir af hellisbúalegri kæti. Ég er enn með vatn í munninum! Takk kærlega fyrir mig mín kæru.


Hnetusmjör og kjúlli

Hnetusmjör.

Hnetusmjör

Kjúlli.

Niðurrifin kjúllabringa

Nei Elín... þú gerðir það ekki!!!

 

ÓJÚVÍST!!

Hnetusmjör og kjúlli - úha

Muahahahaha!

Hnetusmjör og kjúlli

Þetta var æði! Cool


Stofan mín er bleik

Veðrið er snöggt um þolanlegra ákkúrat þessa stundina en það var um helgina. Sólin er að setjast, stofan mín er þar af leiðandi bleik-appelsínugul og birtan hérna inni er notaleg. Morgnarnir eru líka orðnir svo æðislegir þegar brakandi kalt/ferskt/vetrarlegt loftið tekur á móti manni - ahhh, hressandi! Kvöldmaturinn var líka nokkuð hressandi á þessum annars ágæta mánudegi!

Grillaður kjúlli með grilluðu grænmeit, sinnepi og valhnetum

Foremangrillaður kjúlli, paprika, laukur, rauðlaukur, tómatur, smá dijon/honey dijon hasar og að lokum... ohhh svo gott... valhneturnar mínar! Ofnristaðar með smá salti! Perfecto!

Grillaður kjúlli með grilluðu grænmeit, sinnepi og valhnetum

Alveg mangað hvað grænn litur gerir margar myndir glæsilega fínar. Sérstaklega matarmyndir. Svo einstaka sinnum birtast hræðilegir, krumpaðir rauðlaukar á myndum.. en það er allt í lagi. Þessi grillaði ljótlaukur var góðlaukur!

Grillaður kjúlli með grilluðu grænmeit, sinnepi og valhnetum

Svaðalega tilhlökkunarvæn fótaæfing á morgun. Pína þessi grey fram í rauðan dauðan! Hnébeygjur, fótapressur, framstig, hliðarstig, hnakka, handahlaup og fjórfallt heljastökk bara upp á grínið! Amen!

Hafið það notó í kvöld elsku bestu. Kertaljós, gúmfey föt og með því!


Kanilepli og hnetusmjör

Fullkomið viðbit! Ég segi það satt.

Skera niður epli og strá yfir sneiðarnar kanil.

Kanilepli, ískalt úr ísskápnum

Nota eplanseið til að skúbba upp hnetusmjöri. Eða barasta smyrja hnetusmjöri á eplanseið.

Kanilepli með hnetusmjöri

Borða og brosa út að eyrum!

Brosboxið mitt


Rækjusamloku í töskuna

Átti afgangs rækjur síðan í gær, og vissi að ég yrði út úr húsi yfir hádegismatinn, svo ég bjó ég mér til rækjusamloku 'to go'. Flott að geta nýtt rækjurnar og ennú betra að þurfa ekki að velta um sjálfa mig af hungri inn í miðri smáralind. Pakkaði dýrinu inn í vitawrap!

Vita wröppuð rækjuloka

Rækjulokan kemst mjög fallega fyrir í ofurtöskunni minni ásamt penna, glossi, kveikjara og tannþræði. Allt mjög þarfir hlutir til að búa til sprengju - eða aðra rækjusamloku! Bond... Elín Bond!

Rækjuloku felustaður

Voila!

Felutaska

Gott að grípa í samlokuna þegar hungrið fer að segja til sín...

Rækjuloka með grænmeti og smá sinnepi

...ét og njót!

Hver þarf lítinn hund í töskuna þegar þú kemur rækjuloku þar fyrir? Ekki éturðu hundinn - svo mikið er víst!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband