Hjól = Hjól?

Svo við höldum áfram með smávægilega stærðfræði þá komst ég að því að þrátt fyrir óhjákvæmilegan réttleika þessarar fullyrðingar

Hjól = Hjól

Þá er hjól bara ekkert það sama og hjól!

Ofurfrænka mín, og íþróttakvendi mikið, á eðalgræju sem ég fékk þau forréttindi að misnota síðustu helgi. Hafði svosum ekki mikið um hjólið að segja á þeim tímapunkti annað en að hjólagírinn yfirtók undirritaða og taktarnir svaðalegri en nokkrusinni fyrr.

Hjólið er líka pimpað fyrir íþróttaálfa og hreyfisjúklinga, útbúið bögglabera sem hægt er að festa á þartilgerða tösku sem svo er hægt að setja í gúmmulaði, síma, myndavél, tölvu og jafnvel lítinn hund, ef þannig liggur á. Hraða- og km mælir, sem hjálpar gleðipinnanum hið innra mikið til við að halda hraðanum sem hæstum, er í sjónlínu á stýrinu og brúsahaldari hvílir sig fallega á stellinu.

Að auki við öll nútíma þægindi ofurhjólsins fékk ég einnig að láni hjálm og hjólasólgleraugu mikil - jah, venjuleg sólgleraugu en þó þannig að þau skýli augunum fyrir vindi og... randaflugum...

...sem þarf, meðal annars, að setja stærðatakmarkanir á!

Það má því segja að ég hafi verið nokkuð vel búin og dekruð þegar ég ákvað að hjóla frá mér vit og rænu eftir 15 ára hjólahlé!

Ég innheimti lánsþýfið mitt í gær og hjólaði galvösk á dýrinu í vinnuna.

Afahjól

Lánsþýfi

Ekki misskilja. Þetta hjól er geypigott og fínt fyrir kvikindi eins og mig til að komast frá A til C en elsku, elsku bestu. Ef þið ætlið að leggja bílnum og nýta hjólið í hans stað...

...ekki reyna að "sleppa vel". Herre gud på himmelen!

Helsti munur sem ég finn á ofurhjólinu, og því sem ég er á núna, er að ég sit töluvert betur á því. Grindin er úr áli, sem gerir það léttara, og petala-armarnir eru "lengri".. eða hvað sem það svo kallast. Hvert stig er sumsé lengra, sem gerir verknaðinn sjálfan "að hjóla", auðveldari/þægilegri/mýkri. Stellið sjálft er stærra í sniðum, stýrið lengra, gírskiptingin betri og það eru demparar á því sem ja hérna hér, skipta Jóhannes frá Blúndu nokkuð meira máli en hann fyrst grunti.

Já... grunti!

Ég hefði kannski frekar átt að byrja á því að endurnýja kynni mín við hjólaheiminn á þjóflánaða hjólinu því núna er ég með óþrjótandi dekurhjólamaníu á heilanum og er að finna allskonar ástæður fyrir því að réttlæta massíf hjólakaup á næstu vikum.

Ég held ég sé að verða búin að sannfæra sjálfa mig... það tók um það bil 8 mínútur.

Þið sem eruð í sömu hugleiðingum og ég en hafið tekið þetta skrefinu lengra og ætlið að gerast atvinnuhjólarar.

  1. Kaupa gott hjól
  2. Kaupa hjól sem er nógu stórt fyrir hjólarann, of lítið/of stórt er no go
  3. Réttur útbúnaður er nauðsynlegur

Allt þetta gerir hjólatúrinn, og viljann til að nýta sitt eigið mannafl sem orku til að knýja sig áfram, mun, mun... mun skemmtilegri.

Þannig að gott fólk

Hjól != Hjól


AfmælisSvava, frararskjótar, gæludýr

Byrjum á byrjuninni 

AFMÆLISSVAVA!!!!!

20 ára þetta litla dýr.... litla... dýr.

Afmælis - Svövudýr

Til hamingju með daginn þinn snúður. Afmælisgrautur og Pavlova eru fyrirsjáanleg fyrirbæri í þinni nánustu framtíð. Heart

Hressileg lyftingaræfing tekin í morgun.

Stálsnið fyrir æfingu (Steel Cut Oats). Líta svolítið út eins og gömul kotasæla... en góðir voru þeir maður! Hvíldu sig í ísskáp yfir nótt, með skyri og vanillu, og tóku vel á móti undirritaðri í morgun.

Kanillinn lét sjá sig eftir fyrstu 4 bitana. 

Steel Cut Oats hamingja

Hleðsla eftir æfingu. Eiginlega bara af því það er einfalt að grípa í kvikindið og skúmma með í töskunni.

Labbaði líka í hús sportsins í morgun... og í vinnuna... og hlakka mikið til að labba heim úr vinnu líka.

Hlöðsla

Heilbrigðin svoleiðis skín út um ras.....ið á manni.

Afsakið orðbragðið og allt það.

Gleðilegt.

Hringdi í afa minn blessaðan í gær og fékk, með góðfúslegu leyfi, að ræna hans sérlega tvíhjóla fararskjóta. Er hann ekki yndislega fínn að lána mér gripinn? Sækj'ann sumsé á eftir.

Jú... jú það held ég nú.. hú.

Ég er samt barnabarn gott og kem til með að skila dýrinu á góðviðrisdögum þegar gamlinn vaknar, eins og undirrituð um daginn, með ofvirkt hjólablæti á heilanum.

Nú hefst því hjólatíð gott fólk. Sjáum hvort Aspasinn verði abbó. Aspasinn sem er svo fararskjóti fyrir laumufarþega af áttfættlingasortinni. Alveg magnað. Ég hverf frá grænu þrumunni í 20 mínútur og þegar ég læt sjá mig þar aftur er þessi skvísa búin að útbúa sér heimili.... og byrjuð að éta.

Laumugæludýr

Ekki svo ósvipað mér svona þegar ég hugsa um það!! Like!

Eins ömurlega óþolandi og mér þykja köngulær vera, þá kem ég til með að sætta mig við þetta gæludýr því hún var svo sæt að velja bílinn minn sem flet. Krúttið. Það er líka afsakpega vel metin rúða sem skýlir mér frá bölvítinu, því hún er nefnilega svo stór og hættuleg. Ég get þar af leiðandi fylgst með úr pínkulítilli fjarlægð þegar hún veiðir eitthvað sniðugt OG ég er búin að skýra hana.

Lúlú. Sjáum hvað hún tórir þarna lengi.

"OHM NOM NOM NOM"

Lúlú laumó

Svo við höldum áfram að tala um fararskjóta, jah, og gæludýr, þá kynni ég til leiks hálfbróður minn, í 13 ættlið... á ská... Jöfur ofurtöffara.

Kannski ég fái hann frekar lánaðan en hjólið? Þyrfi samt að lita hann grænan til að friða samviskuna.

Ekki svo góð hugmynd geri ég ráð fyrir.

Jöfri

Flottir feðgar verð ég að segja. Svakalega fallegur hesturinn. Líður ekki að löngu þangað til ég fer að spóka mig á baki, usss hvað ég hlakka til.

Pabbi... faðir minn kær, nú þarf að verða sér úti um annað hross. Hmm... ha...

Pabbi og Jöfri

Pabbi og Jöfri

Í hálfbróðurhúsi eiga líka heima tvö folöld. Sæturassar. Þannig er það nú bara.

tvibbar

Heimalingur og fjósaköttur með meiru. Þessi blessaður er með athyglissýki á háu stigi, þjáist af "Hér er ég" heilkenninu. Eltir mann út um allt og hleypur þetta handrið á enda án þess að blása úr nös.

Sjááið bara hvað hann er væminn og klístraður hahh! Ahh hvað kisur geta nú verið fínar :)

Me me me me

Ég komst ekki í þrektímann í gær - búúú, en á morgun. Á morgun gott fólk byrjar gleðin.

18:00 - 18:40, þetta verður gott sumar!

Jæja ljúfust. Hádegissalat í tveggja tíma fjarlægð. 


Glóir sem gull

Bæði morgunhimininn klukkan 4:45 í morgun!

Sjááið hvað þetta er gullfallegt!

Gullhiminn

Og Gullbylgjan sem ákvað að spila þetta snilldarinnar lag!

"Sííímtólið teeeeek, taaala í þaaaaað, tiiiil þeeeess að seeeegja þér...."

Gullbylgjan er án efa mín uppáhalds ofurstöð - seventís og hamingja.

Ekki örvænta. Ég lofa, ég var að keyra, skipta um gíra, stýra og fylgjast með veginum. Ég hélt bara á myndavélinni. Aspasklukkan er líka korteri of fljót þessi elska. Hef ekki haft nennu, né vilja, til að breyta henni.

Því, þið vitið, það er svo svakalega tímafrekt og erfitt.

Talandi um aspas.

BWAAAHAHAHAHAHAAAAA.....

Uppvakningaaspas

...sá þessa uppstillingu í Hagkaup í gær og froðufelldi úr hlátri. Uppvakninga-aspas gott fólk! Kominn til að ljóstillífa þig til ólífis!

uaspas

Ég meina'ða. Ha. Hverskonar eiginlega framstilling er þetta hahaha. Hvers á aumingja aspasinn að gjalda?

"Fyrirgefðu, já, ég ætla að fá einn aspas. Bara einn. Þennan lengst til hægri undir þessum sem liggur á ská á móti ljósa aspasnum. Já, einmitt... ákkúrat þennan.

Ég fæ svo einn poka hjá þér líka"

Aaaaallavega... 

Í gærkveldið ákvað ég að lifa hættulega og sjóða mér pott af "Steel Cut Oats". Jebb. Heilir hafrar sem búið er að splæsa niður í tvo eða þrjá hluta. Sumsé, mun minna unnir. Ekki þessir sem við þekkjum vanalega, þessir pressuðu. Onei, þessir láta þig vinna fyrir peningunum og neyða þig til að nota geiflurnar.

Steel Cut Oats

Steel Cut Oats

Steel Cut Oats

Steel Cut Oats

Og ómæ grautarinnar heilagur andi alls sem er áferðaperralegt og edorfínlosandi til átu... í þessu lífi og næsta.

EKKERT SVONA... dramatík, þá sérstaklega matardrama, er fullkomlega leyfileg fyrir klukkan 8 á morgnana.

En í fullri ofuralvöru, þá vara þetta svaða. Ég gerði svosum ekki mikið við gumsið annað en að blanda samanvið skyr (ofan í dollunni að sjálfsögðu), vanillu, kanil og bláber. Átti ekki torani. Vildi spara hafragrautsskreytarann eilítið og smakka þetta hreint og beint og haaaaaalalujah systir! Skóflaði þessu inn í ísskáp eftir samansuðu í gærkvöldi og hljóp frammúr í morgun til að smakka.

Tilbúin??

Steel Cut Oats áferðarhamingja

Ohm... ohm nohm nom 

Já... takk... förer!

Steel Cut Oats áferðarhamingja

Þykkildi yfirtók alheiminn og áferðaperinn er búinn að vera að klappa mér á öxlina síðan áti lauk. Ég svoleiðis skar gumsið í tvennt gott fólk. Gleðin við að tyggja litlu hafraklumpana kollverpti efitirvæntingunni við átið, til hins betra, og eftir sat eitt, hamingjusamt, átvagl.

Steel Cut Oats áferðarhamingja sundurskorið gums

Nei, það verður ekki alveg jafn mikið úr þessu og pressuðum höfrum. Pressuðu dýrin verða meira deigó og skemmtilegir. Það væri eflaust hægt að sjóða þessa betur, meira, lengur og það kem ég til með að gera næst og sé hvaða snilld ég uppsker við það.

Ohm nohm nohm.

Hlakka mikið til næstu grautardaga. Það held ég nú.

Dagskráin í dag:

  • 08:00 - Ommiletta
  • 11:00 - Hádegisnart
  • 12:00 - Tabata
  • 13:30 - Hámark
  • 15:30 - Án efa eitthvað ét sökum óviðráðanlegs síhungurs
  • 18:00 - Kvöldmatur 
  • 19:00 - Þrekgrunnur að víkingaþreki

Ketilbjöllur, ólympískar lyftingar, blandaðar bardagaíþróttir, högg, spörk og annað álíka ofurspennó í kvöld.

Eeeeeeheeeeeeek hvað ég hlakka til!


Brennildi og axlasperrur

Hver segir svo að það sé auðvelt að hjóla?

Mætti halda að ég væri steingervingur, hvað árafjölda varðar. Axlirnar kvarta, bakið kveinar, átvaglið kvartar. En þetta er jávkætt kvart engu að síður.

Hjólakaup 2011 hafa formlega verið sett í 5ta gír og ég geri fastlega ráð fyrir því að ungfrúin verði þrusandi eins og elding gott fólk... elding, um allra hverfa, og kvikinda, götur áður en þessi vika tekur enda.

Ég krosslegg hið minnsta fingur um að finna ágætis eintak til að súta núna í sumar.

Aldrei skal þó vanmeta íslenska sól, þó sjaldséð sé, og aldrei skal gleyma að setja sólarvörn á allsbera staði sem standa út í loftið og geifla sig framan í gula fíflið, eins og t.d. sköflunga!

viðbrenndar bífur

Því bífusettið situr eftir með súra sköflungana, viðbrennda og frekar lamaða.

Sprikl í morgunsárið, eftir bananaát, og Hámarki heilsað eftir æfingu. Líkar vel við þann mjöð af einhverjum ástæðum. Ágætis át til að grípa í á hlaupum og handahlaupum.

Gvöðdómlegt salat í hádegismat. Vel þegið af skrokksins hálfu og í eftirrétt...

ofursalat

... snilldarinnar blanda!

Bæta við örlitlum súkkulaðibita og þið eruð með vinnings combó.

Eðalfínt snarl

Já, ég borða kaffibaunir allsberar og beint upp úr pokanum.

Skyr, möndlur og með'í fyrirsjáanlegt í eftirmiðdaginn og guð einn veit hvað kveldið ber í skauti sér. Ef kvöld eru með skaut það er að segja. Ég sé samt grill. Það er það eina sem ég sé!

Annar sólardagur í uppsiglinu? Sólarvika? Mánuður...ir?

*gleði*

Joyful


Tabata, 25 kílómetrar og grautar

Þeir gerast nú varla betri en þetta.

Dagarnir.

Þvílík veður yndis ofurblíða og dásamlegheit!

Fyrir viku síðan var snjór. Fyrir viku síðan var janúar.

Ahhh! Vaknaði með hjólablæti á háu stigi. Á þó ekki hjól... svei sjálfri mér fyrir því. Dagurinn byrjaði á sjálfknúnu tabata sem tók frekar hressilega í sjálfspíningarhvötina verð ég að segja. Hálfum banana var rústað með hraði korter í hamagang og Hámark gúllað með fjórföldum bananaátshraða.

Tók mig til og dressaði mig upp í sumarklæðnað eftir allgott steypibað að sjálfsögðu. Hlíró, stuttó og sumarskó-ó!

Grænt, grænt gras!

Sumarið að koma

Labbaði áleiðis í Gúmmulaðihellinn. Ofurdásemd og glimmer og allt sem að glitrar.

Labbandi átvagl

Þar hitti ég á gamla settið mitt. Þau færðu mér rós þessir strumpar, mér og mömmu, í boði mömmudagsins. Ekki að ég sé orðin, eða sé að verða, mamma. 

"En þú verður það von bráðar gamla kerling..." var mér sagt. Gamla kerling.

Ég fékk því rós.

Rósin mín og afinn minn

Aparólan kallaði á mig. Ég hlýddi.

Ég lagðist.

aparólan og ég

Og stakk táslunum í sólargeislann. Þó þær séu ljótari en amma andskotans, þá eiga þær skilið að fá að taka þátt í svona sól og blíðu og hamingjunnar Herkúles. 

hitatáslur

Stökk þarnæst inn í hús til að vekja systurdýrið mitt sem lá hrjótandi inn í rúmi. Nei, eigi skal Íslending vanta, utandyra, þegar rjómablíða leggur landið í einelti.

Bjó því til einn klassískan bananagraut fyrir kvekendið og lokkaði vampíruna fram í morgunmat.

Þessi skartaði möndlum og kotasælu ásamt vanilludropum fyrir einskæra grautargleði.

banana og möndlugrautur með kotasælu

banana og möndlugrautur með kotasælu

5 mínútum seinna!

AHHHHHH

Systurtær!

systurtær

Og einn allsvaðalega þreyttur kisi.

Gulmundur

Lá og bakaði mig þangað til hungrið fór að segja til sín á nýjan leik.

Fyrir valinu var fyrirframákvaðið krums sem ég forfærði úr Gúmmulaðihellinum í svaðilför minni í uppeldisstöðvarnar í morgun. Þetta ku vera farandesti með meiru mín kæru.

  1. Svo ég éti ekki Gúmmulaðihöllina út á gaddinn. Ekki það að foreldrar mínir eigi ekki alltaf nóg að spísa.
  2. Réttilega samsett snarl og engin fyrirhöfn.

Skyr var það heillin, hnetukrums og, næstum, allt sem er grænt grænt.

farandnesti

Hafið þið einhverntíman séð svona mynd á blogginu mínu?

Kannast einhver við þetta púsl? Skyr og möndlur.... einhver?

SKYRKRUMS

Almennilegt át og ég á leiðinni út í bakstur á nýjan leik.

HJÓLA

Óviðráðanleg hjóladella morgunsins yfirtók undirritað hinsvegar eftir átið og ég hljóp á mettíma yfir til Svövu hjólafrænku minnar kærrar.

Rændi þar af henni:

  • Hjóli
  • Hjálm
  • Gleraugum
  • Tösku

HO HOOOOO

Tilbúin

Kílómetramælir gerður klár...

hjólagleði

...gymbossinn fékk að vera memm... og lago!

skeiðglukkuboss

WOAAHHHHH HVAÐ ÞETTA VAR GAMAN

Segi ykkur það. Hef ekki skemmt mér svona hjólandi vel í langan, laaangan tíma. Þvílík og slík var hamingjan að næst á dagskrá eru hjólakaup. Þannig er það nú bara.

Aðra eins ofurslökun hef ég sjaldan komist í tæri við, ofurslökun ásamt svaðalegri útrás í bland við tryllingslega hamingjugleði þegar ég svoleiðis spídígonsaleðaðist niður brekkur.

Var meira að segja komin í svo geigvænlega einbeittan hjólagír að ég svo gott sem lagði hjólið á hlið í beygjum! Hvorki börn né gamalt fólk voru óhult fyrir hjóladólgnum. Slíkur var hraðinn að það eina sem sást var gul lína sem í heyrðist:

"WHEEEEEEEE....." Þegar kvendið brunaði framhjá.

Svona næstum!

Ahhh, eins og að vera 7 ára *sífellthjólandi* aftur. Snilldin einar.

Veðrið gæti mögulega, jafnvel kannski eitthvað smá, haft eitthvað um þessa óyfirstíganlegu hamingju að gera.

Rakst svo á þetta...

...ughhh hvað mig langar...

fullorðins hjólagleði

... og þetta...

höfnin

...25 kílómetrum seinna, nokkrum stoppum og almennu hangsi, í mínútum talið.

gymbossinn stendur fyrir sínu

Fór svo hraðast í 47 km á jafnsléttu. Hahh!

Ojjjjj hvað þetta var skemmtilega eðalfrískandi og fínt. 

Át eitt epli um leið og ég skoppaði af hjólinu, restina af skyrdollunni, lúku af hnetum og steinrotaðist í tvo klukkutíma. Takk.

Vaknaði með andfælum þegar móðir mín lét háværasta hnerra ársins líta dagsins ljós. Borðaði kveldmat í formi pulsu. Stökk upp á nýjan leik, bjó til enn einn grautinn handa systur minni grautarsvöngu í morgunmat... á morgun....

Múslígrautur með banana og kirsuberjasósu

...og sit nú, nærri dauða en lífi, að skrifa þetta pistilsgrey hérna.

Næst á dagskrá

  1. Hjól
  2. Víkingaþrek hjá Mjölni - jebb, búin að skrá mig
  3. Svefn

Ekki að það komi þessum degi eitthvað við en þá er þetta er nýjasta viðbótin í aumingjans eyrað sem fast er við höfuðið á mér vinstramegin.

Ég á nefnilega nokkur eyru í lausu sem gott er að grípa í af og til. 

gatasigti
Hmmm.... hahh! Þið fáið kannski bara að geta ykkur til um hvaða lokk ég er að tala um Wink

Þvílíkur svaða dásemdar eðaldagur að kveldi kominn ljúfust.

Hjóól hjóól skín á mig..

Svona, eiga sunnudagar, og sumardagar, að vera.

Nótt í hausinn á ykkur.


Fyrsta grill sumarsins

SUMARSINS

sumarsins

sumars...ins

sum...arsins

sumar sumar sumar sumar

Fæ ekki nóg af því. Sumrinu það er. Skrifað, myndað, talað, dansað, hoppað, borðað og meira sem endar á -að.

Fyrsta grillið gott fólk. Skráð og skjalfest.

grillað naut og gúmmulaði

Mömmugarður allur að koma til.

Blóm gott fólk. Við höfum blóm!

blomster

Hornið mitt... elsku, elsku besta hornið mitt! Heart

Sólstólar mín kæru, þeir eru komnir til að vera næstu mánuði.

Hornið mitt

Usss hvað ég hlakka til að liggja í aparólunninúna í sumar. Hlusta á þartilgerð sumarhljóð og vappa um!

aparólan

Bíddu... bíddu bíddu. Í sumar?

Elín.

HAHHH

Það ER sumar takkfyrirgóðandaginn.. og ég var að vappa þarna áðan.

BWAAAHAHAHAHAAAA

*gleðitryllingsdans* ásamt smávegis hártogi í einskærum hamingjuspenning.

Sumar.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband