Hver bað um þessa veðráttu?

Þrumur og eldingar!! Snjór og fok og rok og fjúk og for helvedes bara!

Já nei takk. Það er amk komið nóg af snjó... bestu þakkir fyrir kærlega og amen. Mikið, mikið meira en nóg! Fuss. Ég held ég þurfi að taka fram dansgallann og reyna að særa fram gula monthausinn. Það fer alveg með sumarhlakkarann að sjá grillið breikdansa út á svölum eina stundina og svo þakið snjó hina!

*sumarfnaaaaaas* 

Grautur í morgunsárið, Hleðsla eftir púl. Ómyndað sökum hamagangs og græðgi.

Ég biðst forláts.

Æfing dagsins var tækluð með miklum látum... bókstaflega. Nokkuð gleðileg uppákoma í miðri hnébeygju, að fá eitt stykki þrumu í kjölfar svaðalegrar eldingar. Þrátt fyrir óþol mitt á þessari veðráttu þá var geypilega hressandi að fá þetta svona beint í æð.

Hmm... ég tek þetta til baka. Það hefði verið mjög svo óhressandi að fá þetta beint í æðina. Hélt samt fyrst að það væri einhver að taka myndir inn í sal þangað til þrumudýrið ákvað að stela senunni. Nokkuð magnað verð ég að segja. Svo var leikurinn endurtekinn núna í hádeginu! Reyndar bara eldingin, þruman var eitthvað feimin.

Basilfiskur og ofursalat. Hádegismatur extraordinaire!

basilfiskur

Ég sé fyrir mér meira salat, jafnvel ávöxt í eftirmiðdaginn ásamt skyri og svo eggjahvítupönnsu og pönnusteikt grænt í kvöldmat.

Er með spínat- og rósakálsblæti á háu stigi þessa dagana!

Það er nú aldeilis uppi á teinu ty... í dag!

tespá

Over and out!


Andstutt og harðsperruð

Maður tekur sér tæpa tvo mánuði í "pásu" og kemur út úr því eins og krypplingur á einari!

Get svo svarið það gott fólk. Hressandi nokk að gera æfingar í dag sem ég gerði með annað augað lokað, á meðan ég bjargaði heiminum og klappaði kettlingum, fyrir rúmum mánuði síðan.

Tók einn klassískan Karvelio með öllum sínum armbeygjum, hoppum, froskahoppum og ofuræfingum og eftir hringinn sat ég hlæjandi í svitapolli og vissi ekkert hvaðan á mig stóð veðrið. Held líka að ræktarfólk hafi forðast mig viljandi. Stórbilað kerlingarhræ skellihlæjandi í svitabaði þvaðrandi eintóma vitleysu. Másandi eins og beljan á básnum. Fer ekki frá því að ég hafi slefað smá á meðan æfingu stóð.

Ég talaði tungum mín kæru.

Í einskæru þreytumóki, vaðandi villu og svima... og svita... og töluverðan skjálfta. Ég meina'ða! Ég er meira að segja með harðsperrur í maganum!

Í MAGANUM!!! Ég hef ekki fengið harðsperrur í magann í rúmt hálft ár!!

Ahhh hvað þetta er æðislega eðalfínt alveg! Lovit! Get ekki beðið eftir því að gíra mig upp aftur.

Graut svolgrað í morgun fyrir æfingu og kaffipróteini og beyglu sporðrennt stuttu eftir hamagainginn. Tebollinn samur við sig og rútínan farin að taka á sig mynd að nýju.

Speki dagsins!

tespeki 0804

Ó þú auma tilvera... eða, kannski ekki tilveran. Öllu heldur skrokkurinn á mér. Aumari búk hefur Rögnvaldur sjaldan séð og hann var pyntingameistari á miðöldum.

Oj þér Elín Helga, svei þér bansett. Skammastu þín!

Pinch

Að öðru öllu gleðilegra! 

Fermingarveislan hennar Helgu Þallar litlu frænku er á morgun. Pff... "litlu" frænku. Meira ég sem er orðin "gamla" frænka.

Við sjáum þó um kjúklingaspjótin, brauðið og Pavlovuna og það er bara brotabrot af gleðinni! Jebb! Þetta verður ein... fín... veisla!

Úhhhhh hvað það hlakkar í átvaglinu!


Eitt stykki... fimmtu...dagur?

Allskonar flutningar eiga sér stað. Allskonar.

Tala nú ekki um flutningana sem koma til með að eiga sér stað í næstu viku.

Meira vesenið.

Hringja út af hita og rafmagni, hringja til að færa blessað netið, hringja út af hinu og þessu. Þó sérstaklega hinu.

Setja eldhúsdót ofan í kassa... óguð.... óguðminngóður og allir englarnir hvað það er jafn dreplega leiðinlegt og að horfa á málningu þorna eða kroppa í líkþorn.

Oj. Líkþorn og matarblogg.

Elín Helga!!!

"HVAÐ?"

Ekki að ég kroppi oft í svoleiðis... líkþorn það er, eða... aldrei. Pouty  Gæti samt reynst krefjandi að kroppa í matarblogg svona þegar ég hugsa um það.

Ok, sleppum þessu með líkþornið og kroppum bara í matarblogg.

ALLAVEGA

Verð orðin löglegur Gabbó, aftur, í næstu viku. Er að plana hitt og þetta, virðist alltaf vera að plana eitthvað. Svolítið skemmtileg komandi plön samt sem aður, ég lofa.

Eiginlega mjög skemmtileg.

Ég er meira að segja orðin frekar mikið spennt fyrir þeim. Eitt planið inniheldur m.a. sérlegan matreiðslumann (kokk á góðri íslensku) og mun þar af leiðandi innihalda allskonar, aaaaallskonar ofurmat og einfaldar aðferðir til að gera ofurmat heimafyrir.

Spennó? Ekki satt? Já? Já?

Morgunmatur. Habbó, kabbó, blábbó og eitthvað meira "bbó" til að gera þessa setningu ennú hallærislegri.

En gott var það.

Klassískur með 4 eggjahvítum og bláberjum

Teið er hresst að vanda. 

tespeki

Be light, on the light, Coke li(gh)t(e)... en jú, ágætis boðskapur þetta.

Kannski svolítið trixí að vera ljósið í raun og veru, en það sakar ekki að reyna.

Alltaf að reyna... og smakka. En það er svo aftur efniviður allt annan pistil.

Vonum að það snjói ekki í dag mín kæru, ég vil fá sólina, sumarið, graslykt, birtu, fuglasöng og einstaka humlur takk.


Eitt stykki sunnudagur

Eðalveður. Eðal eðal veður!

Að frátöldum spágrautnum í morgun.

Klassísk kaffihúsaferð! Ahhh... sötra kaffi, teikna og slafra í sig, ekki svo hollum, hafraferning! Þessir hafragúbbar eru bara det beste som er með kaffisopa! Ég segi það satt.

Sunnudagskaffihús

Skyr... og viti menn. SKYR.IS!!

Ekki vanillu nei því vanillu skyr.is kallar fram öll þau hræðilegustu væmnisviðbrögð sem um getur í íslenskum skyrmenntum. Nei... melónu- og ástaraldin skyr.is! Snilldin einar mín kæru.

skjor

Smá munch með skyrinu!

hnetumkrums

Og svo. Til að toppa annars mjög svo léttskýjaðan eðalsunnudag.

Léttskýjaðasta kvöldmáltíðin!

Eggjahvítu + blómkálshræra pökkuð saman í kálblöð með slettu af dijon, tómat- og engifersneiðum.

Borðuð græðgislega.

blómkálseggjagums vafið í kálblað

engifer

Hjartalaga paprika fékk að vera með ásamt smávegis laukchutney!

Hjartapaprika

Léttasta kvöldmáltíðin

Ohm nohm nohm

Tómas var svo étinn ásamt tveimur sellerístilkum að auki við ofangreint. Græðgin var myndasmiðnum sterkari.

hálfétinn tómas

Já... ég fékk mér svo lúku af hnetukrumsinu sem þið sáuð í myndaflækjunni hér að ofan.

Það held ég nú.

Mikið sem ég elska svona daga.


Grautarspá

Einn klassísur, með kanil og kakó, ásamt súkkulaði möndlukaffi.

Klikkar ekki.

Kakókanill og súkkulaðikaffi

Kakókanill og súkkulaðikaffi

Kakókanill og súkkulaðikaffi

Kakókanill og súkkulaðikaffi

Nema þegar hann klárast... þá klikkar sálin og verður pínkulítið sár, bara í örfáar sekúndur á meðan átvaglið er að búa sig undir grautarðþurrð næstu 23,68 tímana.

Búinn

Grautarskálin talaði svo til mín í morgun.

Sólbað

Sólbað... einhver?

Já takk... fyrr en seinna. Komasvooooo!

 


Speki dagsins í boði Yogi Tea

Ok... allt í lagi.

Samþykki þetta alveg. Svona næstum... eða jú, held ég samþykki þetta alveg.

en...

...EN...

yogi te

...mér þyyyykir svo vænt um Kitchen Aidina mína og myndavélina og Aspasinn og stóru myndavélina og pressukaffikönnuna og kistilinn sem langafi átti og myndirnar sem afarnir máluðu handa mér og píanóið mitt og pönnukökupönnuna...

Kannski ég sé ekki nógu yfirskilvitslega þenkjandi á andlega sviðinu til að meðtaka þetta. Ætli meðtakandi þurfi að vera 179 ára, lítill krumpaður, Búddi sem heldur sér í jafnvægisstöðu upp á einmana fjallstind á litlu tánni einnisaman á meðan fjallageit, og einstaka örn, pota í viðkomandi þegar þau eiga leið hjá?

Kannski.

Fernt veit ég þó:

  1. Þetta te er snilldin einar.
  2. Ég kem til með að halda mig við veraldlegar uppáhaldseigur í augnablikinu.
  3. Ég kem líklegast til með að drekka te mér til ánægju næstu árin.
  4. Mun láta það alfarið eiga sig að fylgja tespeki dagsins (sem ég er nokkuð viss um að 179 ára ofurbuddamunkur sjái um að skrifa) amk næstu 152 árin...

...eða þar til ég næ að halda jafnvægi, í uppréttri stöðu, á litlu tá hægri fótar! Sem væri að sjálfsögðu ekkert nema magnað!

Þá myndi ég líka án alls efa gleyma tespekinni og skrá mig í sirkus með atriðið "Elín á einari..." þar sem ég framkvæmi allskonar trix á fyrrnefnum einari sem endar á tá-atriðinu mikla!

Í gvöðanna bænum ekki spyrja hvort ég hafi gleymt að taka pillurnar mínar í morgun gott fólk, það er föstudagur og á föstudögum er allt leyfilegt. Upp að vissum mörkum...

...og úr því þið viljið endilega fá að vita það, þá fann ég pillurnar ekki neinstaðar!

Adju og helgið ekki yfir ykkur mín kæru.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband