1.10.2009 | 18:57
Kjötætufjall
Mikið er rautt kjöt stundum yndislega fínt. Datt allt í einu í rauða kjöts gírinn og get ekki beðið eftir öllu gúmmulaðinu sem ég kem til með að útbúa úr ofurhakkinu sem ég keypti um daginn. Hrísgrjóna kjötbollur í tómatsósu, pottréttir, sugo, hambó...jeee haaw!
Til að fullnægja villimannslegri kjötlöngun minni heimsótti roastbeef samloka matardiskinn minn í kvöld - mínus brauðið! Raðaði káli og tómötum á disk. Krullaði upp og hrúgaði kjöti þar ofan á með sinnepi (dijon/honey vinegar dijon) inn á milli. Steikti loks tonn af lauk upp úr olíu og kom fallega fyrir ofan á kjötfjallinu mínu. Skreytti með steinselju og stakk mér til sunds! Úhhh viljið þið bara sjá...
Þetta var svoooo gott!!! Sinnep, roastbeef og laukur eru alheilög þrenna sem bannað er að aðskilja! Þið sem ekki hafið tekið eftir því, þá er eitthvað dularfullt rauðlaukstímabil búið að yfirtaka græðgispúkann. Ekki neikvætt... svo mikið er víst!
Kjötætan hið innra hoppar og skríkir af hellisbúalegri kæti. Ég er enn með vatn í munninum! Takk kærlega fyrir mig mín kæru.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Kjöt, Ragga Nagli, Uppáhalds | Breytt 24.9.2010 kl. 10:33 | Facebook
Athugasemdir
Ahhh yes, hin eina sanna frumkona vopnuð sinnepi - helst DijonSinnepi
Dossa (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 19:45
Grettinn í framan horfi ég á thessa teikningu....ááááá ae ae aej aej aej
Liturinn á raudlauknum passar einmitt mjög vel vid Dijon litinn.
Hungradur (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 19:51
Hahahahahaha
Elín Helga Egilsdóttir, 1.10.2009 kl. 20:03
Thessi réttur er thad sem ég kalla gúmmeladi..en thú kallar gúmmuladi...eda er gúmmuladi bara sambland af 2 faedutegundum? Thetta er gott gúmmeladi.
Hungradur (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 11:08
Gúmmulaði getur verið hvurslags. Yfirleitt er gúmmulaði í minni bók "eftirréttir" af einhverri sort, sætabrauð og nammi en þetta fjall var svo sannarlega mikið gúmmulaði!
Elín Helga Egilsdóttir, 2.10.2009 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.