4.8.2009 | 19:07
Laxa og quinoa salat
Endurtekning á hádegismatnum - blandað gums. Ég tek uppáhaldstarnir í mat og matarvali! Nú verður það salat út ágúst, get svo svarið það!
100 gr. reyktur lax, 3 niðurskornar eggjahvítur, 1 sneið smátt skorinn rauðlaukur, 1 dl grænar baunir (hverjum hefði dottið það í hug?), 1/2 smátt skorinn tómatur og 1/2 bolli soðið quinoa. Sett í skál og hrært saman. Svo sullaði ég yfir þetta sítrónusafa, dilli, dijon sinnepi, pínkulítið af hunangi, balsamic og létt AB-mjólk og toppaði með capers, steinselju og rifnum sítrónuberki.
Jújú, þetta var ágætasta salat, kom vel út. Flottur og einfaldur kvöldmatur enda maginn sáttur og saddur! Reyktur lax er bjútifúl!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Fiskur, Kvöldmatur | Breytt 23.9.2010 kl. 22:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.