18.7.2009 | 10:36
'Pumpkin Pie' hafragrautur
Ár og aldir síðan ég fékk mér hafragraut! Hlakkaði líka mikið til að dýfa mér ofan í þessa skál eftir sprettina í morgun. Um að gera og nota graskersmaukið góða og skella í Pumpkin Pie í morgunmat. Amerískur þakkargjörðar-eftirréttur um mitt sumar á Íslandinu! Mikil gleði!
'Pumpkin Pie' hafragrautur
30 gr. hafra, ég notaði grófa. Um það bil 1 dl.
1 skeið hreint prótein (má sleppa)
60 gr. grasker. Um það bil 1/4 úr bolla.
Kanill
Nutmeg (múskat?)
Mætti jafnvel setja einn negulnagla eða mulin negul. Ég gerði það reyndar ekki.
vanilludropar
1,5 dl vatn
Hafragrautsskraut:
Skyrsletta, 3 muldar valhnetur og kókos. Ef þið viljið vera extra góð við ykkur, þá setjið þið örlítið af púðursykri ofan á grautinn, sjóðandi heitan, og slettu af þeytirjóma í staðinn fyrir skyrið! Mmmmmm...
Þessi var geggjaður! Algerlega geggjaður! Held að graskersmauk verði mikill vinur minn í framtíðinni!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Hafragrautur, Prótein, Uppáhalds | Breytt 23.9.2010 kl. 21:55 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.