19.5.2009 | 10:19
Hafragrautur með peru, eplum, valhnetum og kókos.
Ahh, venjubundin matardagskrá! Einstaklega ljúffengur morgunmatur og skrokkurinn heldur hamingjusamari en um helgina. Byrjaði daginn, enn einn sólardaginn, á skokki í Garðabænum. Mjög upplífgandi og æðislegt. Allir sem hafa kost á að vera úti eru úti, hjólandi, hlaupandi, labbandi, hlæjandi!
Það er æðislegt þegar sólin lætur sjá sig á Íslandinu, verða allir svo kátir í hjartanu!
Sjóða saman:
1 dl hafrar
1 skammtur prótein (ég notaði banana M&M - NOM)
1/4 stappaður banani
1/2 pera, smátt skorin
1/2 epli, smátt skorið
Gomma af valhnetum
smá kanill
smá vanilludropar
Hafragrautsskraut:
Kókos og múslí
Hnetusmjör í skeiðina
Mikið er nú almennilegt að borða almennilegan mat.
Eigið góðan dag elsku fólk, njótið hans í botn og njótið þess að vera til!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Hafragrautur, Prótein | Breytt 23.9.2010 kl. 21:02 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.