18.8.2011 | 19:00
Spartverjaæfing
Það var vetrarlykt úti í morgun. Funduð þið hana?
Er annars að borða þetta.
Þetta...
...er gott!
Hvítkál, laukur og vorlaukur steikt saman uppúr olíu þangað til meyrt. Kryddað eftir smekk og svkettu af balsamic ediki + soja bætt fagmannlega út á.
Eggjakaka a la chef með spínati, pickles, dijon og tómötum.
Morguninn var tekinn í Spartverjaæfingu. Eða svo segir mér netið.
Ég trúi því samt alveg. Þetta var HIIT djöfulsins.
Þá sérstaklega þegar þú er þreyttur og pínkulítið svangur, sem er þó ekki alveg marktækt og heldur heimskulegt ástand til að taka æfingu í sem ber nafnið "Spartverjaæfingin".
En það er búið og gert.
Kærið mig.
Gerir þú þetta kvikindi vel og vandlega færðu kærkominn verk í rassinn, haminn, fæturna, rassinn... rassinn.
Nei, ég sagði kærkominn verk. Ekki "beygðu þig eftir sápunni" verk.
...
Þú baðst um þetta.
HVERNIG?
- 1 mínúta í djöfulgang
- 15 sek í hvíld, jebb, bara 15 sek
- 2 mín í hvíld eftir hvern hring, lengur/styttra eftir þörfum/getu
- Endurtaka hringinn þrisvar
Reynið fyrst og fremst að halda góðu formi og gera æfingarnar rétt í staðinn fyrir að ná sem flestum endurtekningum. Finna fyrir vöðvunum og virkja allt sem á að virkja og halda miðjunni alltaf spenntri. Það gerir ekkert fyrir ykkur að komast í 120 goblet með bakið í beygju, rassinn lafandi, hendurnar slappar og fæturna skáhallt uppávið og niður.
- Rangt form fer með skrokkinn, bakið og systemið, og þið fáið kryppu fyrir fertugt
- Ef þið næðuð að taka goblet í þessu ofangreindu ástandi væruð þið eflaust eitthvað annað en mannleg
Einn... tveir... og... byrja!!
- Goblet hnébeygja, djúúúp og góð beygja gott fólk. Hugsið rass, rass, RASS
- Mountain climber - púls
- Ketilbjöllu sveifla - púls
- T-armbeygjur
- Splitt hnébeygjur, með hoppi takk - púls
- Standandi róður m/kb, halla fram
- KB hliðarhnébeygja, kb snertir gólf
- Armbeygja með lóðum, lyfta upp lóði í efstu stöðu
- Framstig með snúning + lóði ef þið treystið ykkur
- Axlapressa m/lóðum eða ketilbjöllum
Stutt, hnitmiðað, svaðalegt, lyftingar, brennsla, 40 mínútur - inn og út úr salnum!
Prófið þetta sem fyrst mín kæru. Þið eigið eftir að standa á meiru en bara öndinni ef vel er í lagt!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Kvöldmatur, Ræktarstúss | Facebook
Athugasemdir
Tvær færslur í dag?
Could it be?
http://www.youtube.com/watch?v=BNowdx62tXo&feature=fvwrel ?
Dossan (IP-tala skráð) 18.8.2011 kl. 22:11
http://www.youtube.com/watch?v=oSPJN08lz7g&feature=related
Elín Helga Egilsdóttir, 18.8.2011 kl. 22:57
Meira svona http://www.youtube.com/watch?v=playnmJB_TI&feature=fvsr
Dossan (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 03:40
Hefur þú aldrei prófað Combat conditioning? Skemmtilegasta hreyfing sem ég hef gert (og ég elska að fara í ræktina og lyfta)
Smá vídjó hér að neðan (reyndar er það kennt í Combat gym í dag)
http://www.youtube.com/watch?v=Gj9V6j2vpuc
Hugrún (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 15:27
úúúúhhh nei, ekki prófað ennþá en lítur út fyrir að vera eitthvað right up my alley!
Tabata + crossfit + core æfingar = ööölsk!
Elín Helga Egilsdóttir, 21.8.2011 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.