19.8.2011 | 08:09
EVERYDAY I'M FLUFFLIN'!
Ég rakst á þessa snilld á netinu og varð að prófa.
Morgunmatur. Eftirmatur. Millimálsmatur.
Að sjálfsögðu. En ekki hvað? Af hverju í andsk.. datt mér þetta ekki í hug fyrr?
- 30 gr. hreint prótein
- 130ish gr. frosin ber (eða hvað sem er.. jafnvel meira magn)
- Tæplega rúmur.... deselíter mjólk, tæplega rúmur.
Prótein + ber.
Prótein + ber + mjólk.
Prótein + ber + mjólk + kanill + vanilludropar.
MAGIGSTICK
HRÆRA
Tilvonandi próteinfluff, hittu herra K-aid.
15 sek
30 sek
Ooohh bayyybee!
Innan við mínúta!
Marengs einhver?
Já, já takk fyrir.
Það heyrðist meira að segja svona marengshljóð í þessu þegar ég hrærði því til og frá.
"Flúghbllflúhhbbfglhúú"
Og... svo... whooobbah... á hvolf... ójeah!
Það helst. Það marengshelst!
Gerum þennan gjörning svo örlítið myndvænni.
En bara örlítið.
Því ég var svöng.
Og gráðugri en amma skrattans.
Próteinfluff + Buddhaskál = öööööölsk!
Jebb. Þið vitið hvert þessi klessa fór.
Svo bætti ég "aðeins meiri" kanil. Bara aðeins.
Því kanill er góður.
Þannig er það nú bara.
Elskaðu kanilinn.
Hugsið ykkur gott fólk... allan dónaskapinn sem hægt er að framkalla héðanaf!
- Frosnir-bananar fluff! (Ég gæti gubbað af hamingju)
- Mangófluff!
- Bláberja og kanilfluff!
- Banana og kókosfluff!
- Ananasfluff!
- Peru og bláberjafluff
Sjáið þið ekki svo fyrir ykkur bananapönnsurnar sem uppskúbbunaráhald?!?!?!?!
*og átvalgið sprakk úr hamingju*
The end.
Dreeeeptu mig ekki úr matarpervisku dauðans.
Eini ókosturinn, ef einhver, er að þetta þarf helst að borðast med det samme, annars oxast kvikindið eins og allsber banani í sól og verður að hálfgerðri loftbólu af einhverjum ástæðum.
En hvað með það... gumsið kemur ekki til með að lifa nógu lengi til að loftbólast. Trúið mér!
Voila. Þú ert hérmeð útskrifað eintak úr próteinfluffskólanum.
Farðu nú og búðu þér til fluff!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Morgunmatur, Prótein, Uppáhalds | Facebook
Athugasemdir
Ég hló upphátt þegar ég las þetta og sá þig fyrir mér frussandi munnvatni yfir þessu.. hahaha
Þú ert snillingur Ella mín :)
Stella (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 10:30
Fyrsta sem ég gerði í morgun!
Snilld. Ekkert nema tær snilld!
Takk fyrir að finna þetta.
Ragnar (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 11:37
hahahaah hló einmitt líka upphátt.... "oxast kvikindið eins og allsber banani í sól" ....
ef þetta fer hratt í magann oxast þetta þá ekki þar og verður að loftbólu sem springur svo þegar maður á síst von með heddfónana á hausnum og grunlaus skrifstofusambýlinga hinu megin við lágt skilrúmið
Hulda (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 13:25
Stella: Græðgin var stórkostleg! hahh :)
Ragnar: Það var nú ósköp væskilslegt að þakka fyrir, ég gerði nú lítið annað en að herma eftir og tilkynna herlegheitin. En mín er ánægjan engu að síður.
Hulda: Þaaað er seinnitíma vandamál - spurning um að fá sér einn sopa af kristal eftir atið og vona að loftið skili sér út andlitsmegin! ;)
Elín Helga Egilsdóttir, 19.8.2011 kl. 13:29
Þetta er besta flöff sem ég hef smakkað á æfinni..!! :D
vá hvað ég væri til í að flöffa allla daga.....................
Þórdís.... (IP-tala skráð) 24.8.2011 kl. 23:38
Hahaha góð! Mig langar í þetta. Namms!
Erna (IP-tala skráð) 30.8.2011 kl. 08:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.