8.5.2011 | 22:19
Tabata, 25 kílómetrar og grautar
Þeir gerast nú varla betri en þetta.
Dagarnir.
Þvílík veður yndis ofurblíða og dásamlegheit!
Fyrir viku síðan var snjór. Fyrir viku síðan var janúar.
Ahhh! Vaknaði með hjólablæti á háu stigi. Á þó ekki hjól... svei sjálfri mér fyrir því. Dagurinn byrjaði á sjálfknúnu tabata sem tók frekar hressilega í sjálfspíningarhvötina verð ég að segja. Hálfum banana var rústað með hraði korter í hamagang og Hámark gúllað með fjórföldum bananaátshraða.
Tók mig til og dressaði mig upp í sumarklæðnað eftir allgott steypibað að sjálfsögðu. Hlíró, stuttó og sumarskó-ó!
Grænt, grænt gras!
Labbaði áleiðis í Gúmmulaðihellinn. Ofurdásemd og glimmer og allt sem að glitrar.
Þar hitti ég á gamla settið mitt. Þau færðu mér rós þessir strumpar, mér og mömmu, í boði mömmudagsins. Ekki að ég sé orðin, eða sé að verða, mamma.
"En þú verður það von bráðar gamla kerling..." var mér sagt. Gamla kerling.
Ég fékk því rós.
Aparólan kallaði á mig. Ég hlýddi.
Ég lagðist.
Og stakk táslunum í sólargeislann. Þó þær séu ljótari en amma andskotans, þá eiga þær skilið að fá að taka þátt í svona sól og blíðu og hamingjunnar Herkúles.
Stökk þarnæst inn í hús til að vekja systurdýrið mitt sem lá hrjótandi inn í rúmi. Nei, eigi skal Íslending vanta, utandyra, þegar rjómablíða leggur landið í einelti.
Bjó því til einn klassískan bananagraut fyrir kvekendið og lokkaði vampíruna fram í morgunmat.
Þessi skartaði möndlum og kotasælu ásamt vanilludropum fyrir einskæra grautargleði.
5 mínútum seinna!
AHHHHHH
Systurtær!
Og einn allsvaðalega þreyttur kisi.
Lá og bakaði mig þangað til hungrið fór að segja til sín á nýjan leik.
Fyrir valinu var fyrirframákvaðið krums sem ég forfærði úr Gúmmulaðihellinum í svaðilför minni í uppeldisstöðvarnar í morgun. Þetta ku vera farandesti með meiru mín kæru.
- Svo ég éti ekki Gúmmulaðihöllina út á gaddinn. Ekki það að foreldrar mínir eigi ekki alltaf nóg að spísa.
- Réttilega samsett snarl og engin fyrirhöfn.
Skyr var það heillin, hnetukrums og, næstum, allt sem er grænt grænt.
Hafið þið einhverntíman séð svona mynd á blogginu mínu?
Kannast einhver við þetta púsl? Skyr og möndlur.... einhver?
Almennilegt át og ég á leiðinni út í bakstur á nýjan leik.
Óviðráðanleg hjóladella morgunsins yfirtók undirritað hinsvegar eftir átið og ég hljóp á mettíma yfir til Svövu hjólafrænku minnar kærrar.
Rændi þar af henni:
- Hjóli
- Hjálm
- Gleraugum
- Tösku
HO HOOOOO
Kílómetramælir gerður klár...
...gymbossinn fékk að vera memm... og lago!
WOAAHHHHH HVAÐ ÞETTA VAR GAMAN
Segi ykkur það. Hef ekki skemmt mér svona hjólandi vel í langan, laaangan tíma. Þvílík og slík var hamingjan að næst á dagskrá eru hjólakaup. Þannig er það nú bara.
Aðra eins ofurslökun hef ég sjaldan komist í tæri við, ofurslökun ásamt svaðalegri útrás í bland við tryllingslega hamingjugleði þegar ég svoleiðis spídígonsaleðaðist niður brekkur.
Var meira að segja komin í svo geigvænlega einbeittan hjólagír að ég svo gott sem lagði hjólið á hlið í beygjum! Hvorki börn né gamalt fólk voru óhult fyrir hjóladólgnum. Slíkur var hraðinn að það eina sem sást var gul lína sem í heyrðist:
"WHEEEEEEEE....." Þegar kvendið brunaði framhjá.
Svona næstum!
Ahhh, eins og að vera 7 ára *sífellthjólandi* aftur. Snilldin einar.
Veðrið gæti mögulega, jafnvel kannski eitthvað smá, haft eitthvað um þessa óyfirstíganlegu hamingju að gera.
Rakst svo á þetta...
...ughhh hvað mig langar...
... og þetta...
...25 kílómetrum seinna, nokkrum stoppum og almennu hangsi, í mínútum talið.
Fór svo hraðast í 47 km á jafnsléttu. Hahh!
Ojjjjj hvað þetta var skemmtilega eðalfrískandi og fínt.
Át eitt epli um leið og ég skoppaði af hjólinu, restina af skyrdollunni, lúku af hnetum og steinrotaðist í tvo klukkutíma. Takk.
Vaknaði með andfælum þegar móðir mín lét háværasta hnerra ársins líta dagsins ljós. Borðaði kveldmat í formi pulsu. Stökk upp á nýjan leik, bjó til enn einn grautinn handa systur minni grautarsvöngu í morgunmat... á morgun....
...og sit nú, nærri dauða en lífi, að skrifa þetta pistilsgrey hérna.
Næst á dagskrá
- Hjól
- Víkingaþrek hjá Mjölni - jebb, búin að skrá mig
- Svefn
Ekki að það komi þessum degi eitthvað við en þá er þetta er nýjasta viðbótin í aumingjans eyrað sem fast er við höfuðið á mér vinstramegin.
Ég á nefnilega nokkur eyru í lausu sem gott er að grípa í af og til.
Hmmm.... hahh! Þið fáið kannski bara að geta ykkur til um hvaða lokk ég er að tala um
Þvílíkur svaða dásemdar eðaldagur að kveldi kominn ljúfust.
Hjóól hjóól skín á mig..
Svona, eiga sunnudagar, og sumardagar, að vera.
Nótt í hausinn á ykkur.
Flokkur: Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 22:32 | Facebook
Athugasemdir
Djös.... læti eru í þér, bæði hjólandi og skrifandi! Loik it
Dossa (IP-tala skráð) 8.5.2011 kl. 23:20
Svo gaman að lesa bloggið þitt. Ert svo opin og lífsglöð og bara. Tekur þér margt fyrir hendur.
Ert alveg númer 1, 2 og 3 í mínum bloggrúnti. Mikil hvatning.
Takk takk takk :)
Lilja (IP-tala skráð) 9.5.2011 kl. 08:53
Hjól auðvitað, þú ert snillingur, ég sem var í vandræðum í gær af því ég mátti ekki gera neitt í góða veðrinu, en maður má hjóla á frídeginum, hjól í sólinni telst ekki með í æfingarprógraminu :D. Man það næst ;)
Ragnar (IP-tala skráð) 9.5.2011 kl. 11:01
Dossa: Hjólandi eins og vindurinn skal ég þér segja.... viiindurinn!
Lilja: Æji elsku besta. Takk fyrir það :)
Ragnar: Ákkúrat! Active rest day.. lalla þetta í sumarblíðunni. Oj hvað þetta var mikill eðall í krús.
En núna er ég forvitin, af hverju máttirðu ekki gera neitt í gær? Ertu að stefna að einhverju especial?
Elín Helga Egilsdóttir, 9.5.2011 kl. 11:35
Ástæðan er því miður fullkomlega ómerkileg, ég var búinn að gera eitthvað á hverjum degi alla síðustu viku og var orðinn virkilega, verulega þreyttur. Það var komin hætta á meiðslum.. en það er leiðinlegt að vera skynsamur :P
Ragnar (IP-tala skráð) 9.5.2011 kl. 13:20
Nammmm hvað siðasta grautar mynd er girnó ! Hvað setturðu i þennan ?
Tanja (IP-tala skráð) 9.5.2011 kl. 14:45
Ragnar: Þú hefur þó amk vit á því að hluta á skrokkinn og hlýða, það er geypilega jákvætt.
Tanja: Grillaði banana smá fyrst, blandaði við hafra + mjólk + torani, smá hunangssletta og sauð saman. Kotasæla út í, ásamt vanilludropum, í endann toppað með múslí, resta af banana og smávegis kirsuberjasultu :)
Elín Helga Egilsdóttir, 10.5.2011 kl. 07:43
Jú, og dass af salti. Má ekki gleyma því.
Elín Helga Egilsdóttir, 10.5.2011 kl. 07:43
Luv ja Ellan mín - þú ert einstök og æðisleg ;)
Svava Garðarsdóttir (IP-tala skráð) 12.5.2011 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.