Eitt stykki... fimmtu...dagur?

Allskonar flutningar eiga sér stað. Allskonar.

Tala nú ekki um flutningana sem koma til með að eiga sér stað í næstu viku.

Meira vesenið.

Hringja út af hita og rafmagni, hringja til að færa blessað netið, hringja út af hinu og þessu. Þó sérstaklega hinu.

Setja eldhúsdót ofan í kassa... óguð.... óguðminngóður og allir englarnir hvað það er jafn dreplega leiðinlegt og að horfa á málningu þorna eða kroppa í líkþorn.

Oj. Líkþorn og matarblogg.

Elín Helga!!!

"HVAÐ?"

Ekki að ég kroppi oft í svoleiðis... líkþorn það er, eða... aldrei. Pouty  Gæti samt reynst krefjandi að kroppa í matarblogg svona þegar ég hugsa um það.

Ok, sleppum þessu með líkþornið og kroppum bara í matarblogg.

ALLAVEGA

Verð orðin löglegur Gabbó, aftur, í næstu viku. Er að plana hitt og þetta, virðist alltaf vera að plana eitthvað. Svolítið skemmtileg komandi plön samt sem aður, ég lofa.

Eiginlega mjög skemmtileg.

Ég er meira að segja orðin frekar mikið spennt fyrir þeim. Eitt planið inniheldur m.a. sérlegan matreiðslumann (kokk á góðri íslensku) og mun þar af leiðandi innihalda allskonar, aaaaallskonar ofurmat og einfaldar aðferðir til að gera ofurmat heimafyrir.

Spennó? Ekki satt? Já? Já?

Morgunmatur. Habbó, kabbó, blábbó og eitthvað meira "bbó" til að gera þessa setningu ennú hallærislegri.

En gott var það.

Klassískur með 4 eggjahvítum og bláberjum

Teið er hresst að vanda. 

tespeki

Be light, on the light, Coke li(gh)t(e)... en jú, ágætis boðskapur þetta.

Kannski svolítið trixí að vera ljósið í raun og veru, en það sakar ekki að reyna.

Alltaf að reyna... og smakka. En það er svo aftur efniviður allt annan pistil.

Vonum að það snjói ekki í dag mín kæru, ég vil fá sólina, sumarið, graslykt, birtu, fuglasöng og einstaka humlur takk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég veit það eru 100 manns búnir að segja þetta aftur og aftur en Ella, ég eeeeelska bloggið þitt hahahah

Kemur mér alltaf í gott skap. Takk fyrir að vera ofurhresst átvagl :)

Ef þú myndir skrifa bók, þó það væri ekki nema bara um daginn og veginn, þá myndi ég kaupa hana!

Ingibjörg (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 10:05

2 identicon

Ah segðu mér að þetta sé sólarupprás sem að lýsir upp te-boðskapinn. Þá er þessi mynd mjög yndisleg. Friður yfir henni. Nú er ég ljósið. :)

Erna (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 10:48

3 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Ingibjörg: Hahh, það er aldeilis sérdeilis. Takk fyrir mig :)

Erna: Sólarljós jú, mikið rétt :) Mætti samt alveg fara að kveikja á því, það er kominn tími á smá sumar :)

Elín Helga Egilsdóttir, 7.4.2011 kl. 11:38

4 identicon

Ávallt skemmtilegt að kíkja á bloggið þitt :) 

Hlakka til að sjá allt þetta nýja - gangi þér vel :)

Ásta (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 13:28

5 identicon

Rosalega er þetta te þitt dramatískt!

inam (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 13:44

6 identicon

Bara af því ég var ekki búin að segja það: VELKOMIN AFTUR! :D

SÓ (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 15:51

7 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Hohh, takk fyrir það elsku bestu.

Inam: Já, þetta er Shakespeare allra te-a!

Elín Helga Egilsdóttir, 8.4.2011 kl. 09:28

8 identicon

Hef ekki gefið mér tíma til að kommenta eftir come back-ið en verð að segja að ég er svaðalega glöð að þú sért dottin aftur í blogggírinn

Skil þig ógeðslega vel með að nenna ekki að flytja, ég er sjálf að flytja heim á klakann eftir ca. 2,5 mánuði og ég verð að segja að ég er byrjuð að kvíða fyrir niðurpökkun og svo öllu þessu "segja upp neti, síma o.s.frv" en slíkt er nefnilega alls ekki svo einfalt hér í Hollandinu

Ella í Hollandi (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 17:59

9 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Maður þarf nánast að útbúa todo lista... segi það satt. Alltaf eitthvað sem maður á eftir... tala nú ekki um allt draslið sem nær því að fylgja manni.

Fyrir hverja eina draslskúffu sem þú tæmir, þá finnur þú aðra!

Elín Helga Egilsdóttir, 13.4.2011 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband