19.12.2010 | 23:03
Viðburðarríkur dagur
Dagurinn í myndum.
Byrjaði sakleysislega.
Svo gerðist þetta.
Undirbúningur fyrir piparkökuhúsagerð!
Ásamt kökum og öðrum kræsingum.
Smá smakk frá mér.
Svo ákvað ég að taka smá rækt á þetta. Chiaskyr eftir atið.
Ohhh hef ekki fengið mér chiaskyr í langan, langan tíma!
Þvílík hamingja.
Chiaskyr og kanill með vanillu torani = grjónagrautur.
Chiaskyr varð að veruleika í dag af því að Svava mín kær sendi á mig chiafræ, mér til óbilandi ánægju og hamingjugleði! Eeeelsku besta mín, takk aftur fyrir.
Svo gerðist þetta!
Barnaafmæli!
Óguð!
Einn af mínum 8 akkilesarhælum.
Fullkominn vettvangur ofgræðgisáts og annarrar syndsamlegrar matarpervirsku.
Svo gerðist þetta!!!
Fannar... ég á núna eldhúsborð!
Preis ðe lord.
Súkkulaði Mokka súperkökurnar litu dagsins ljós í kvöld!
Jebb, þær eru jafn góðar og þær líta út fyrir að vera.
Ásamt... já, tvöfalt já og amen með flöde!
Gott fólk!
Uppáhalds, uppáhalds smákökurnar mínar! Einföldustu hafrakökur sem þið finnið.
Algert! Uppáhald!
Hélt ég hefði týnt uppskrifitinni en nei, fann'ana! Þær eru svo frábærar að þær fá sitt eigið uppskriftablogg á næstu dögum. Uppáhalds kökurnar mínar og pabba. Alltaf fyrstar til að hverfa.
Sykur, vanilla, smjör og hafrar! Þetta kombó klikkar bara ekki.
Súkk-mokka kökurnar fá líka sér blogg. Þær eru svaðalegar.
Það sem stendur þvi uppúr jólabakstri 2010 eru einföldu ofurhafrakökurnar, súkk-mokka, biscotti og hafrakökurnar frá því í gær.
Ahhh!
Núna ætla ég að súkkulaðihúða þessar karamellur og fara svo að sofa.
Jólin eru eftir 4 daga!
Hólí-hell... nei... ég meina... Holí jólí!
Djefulli hlakka ég óstjórnlega mikið til!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bakstur - "óhollt", Svindl | Breytt s.d. kl. 23:13 | Facebook
Athugasemdir
NEEEIIIII...... *felluráknéogtekurumhöfuðið* Hvar var ég???' Af hverju var mér ekki boðið í þetta barnaafmæli???? Ég ööööölssshhka barnaafmælisveitingar..... þá er dýrinu hleypt á gandreið og allar flóðgáttir opnaðar.
Ragnhildur Þórðardóttir, 21.12.2010 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.