3.12.2010 | 12:30
Pecan-pie stangir
Pecan-pie fylling ofan á hveitibrauðsskorpu! Þykir þér karamella góð? Söltuð karamella og ristaðar hnetur?
Hvernig getur þetta kombó klikkað? Hvernig? Ég bara skil það ekki.
Enda klikkaði það ekki.
Ekki nærri því næstum nálægt því að klikka.
Svona nú. Hip hip hip.
Inn í eldhús með þig. Þetta tengur enga stund!
Pecan-pie stangir
Botn
- 2 bollar hveiti
- 1/3 bolli sykur
- 1/4 tsk salt
- 150 gr. kalt smjör, skorið í litla bita
Hræra saman hveiti, sykur og salt. Blanda þá smjeri saman við hveitið - þangað til það líkist grófu mjöli. Hræra saman í matvinnsluvél t.d. eða vinna saman með annarslags tækjum og tólum, eins og t.d. þessu:
Inn í 175 gráðu heitan ofn í 20 mín!
Á meðan.
Fylling
- 1 bolli sykur
- 3 msk púðursykur
- 1/2 tsk salt
- 1 bolli sýróp
- 3/4 tsk vanilla
- 80 g. smjör
- 3 egg, léttilega hrærð
- 1,5 bolli hnetur (pecan, blanda... það sem þú vilt. Ristaðar í ofni í ca. 10 mín)
Innskot
- Sjáið þið hvað ég er svakalega samkvæm sjálfri mér í mælieiningunum? Þær eru ekkert manískar eða neitt!
Allt saman í skál, nema hnetur, hrært vel. Blanda þá hnetum samanvið.
Þegar botninn kemur út úr ofninum, hella karamellublöndunni stax yfir og aftur inn í ofn í 20 mín. Beint út úr ofni, leyfa að kólna smá og svo inn í ísskáp yfir nótt. Taka út úr ísskáp og skera í bita.
Og þá gerist þetta!
Óguð og öll hans fylgikvikindi. Ég get nú formlega dáið hamingjusöm.
Ég vil heyra knús!
*KNÚÚS*
Kram!!
*KRAAAAAM*
Seigogdjúsíkaramellasemlekurofaníbotninn!
*ÞAÐ SEM HÚN SAGÐI*
Fyrir utan það hversu yndislega góðar ristaðar hnetur eru. Elskurnar mínar. Þetta er hinn fullkomni sykurbombu-biti. Þið verðið með spékoppa á rasskinnunum í margar vikur eftir át á einu svona stykki. Fullnægir svoleiðis öllum matarpervertískum skilningarvitum hvað áferð, bragð, gæði og æði varðar.
Bræða svo hvítt og dökkt súkkulaði til þess eins að vera með fínheit.
Manstu það sem ég sagði í byrjun?
Inn í eldhús með þig!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkur: Bakstur - "óhollt" | Breytt s.d. kl. 21:14 | Facebook
Athugasemdir
Jammm, nammmms - ég koma hjálpa = ég fá svona
dossa (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 12:57
Slurp og slef og það sem hún sagði :D
Fannar Karvel (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 14:00
o gvuð! ég get ekki talað fyrir ofvirkum munnvatnskirtlum!!
inam (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 14:45
Thetta er rosalega girnilegt. Verst ad ég get ekki farid eftir uppskriftinni. Ég veit ekki hvad bolli thýdir. Ég fer einungis eftir desilítra-uppskriftum.
Ef fólk veit ekki hvad desilítri er thá er thad 1/10 (10%) lítri.
Aldrei!.....ALDREI!! var talad um bolla í íslenskum uppskriftum....thad gerdist med tilkomu alnetsins og er KJÁNALEG tíska!
Thad er jafn kjánalegt ad tala um bolla í uppskriftum og ad tala um fet, tommur, mílur og steina (eins og gert er Englandi í sambandi vid thyngd fólks)
Svo er gott ad hafa eftirfarandi í huga thegar fólk hugar ad matarinnkaupum fyrir jólin:
Kostur neitaði að vera með
Verslunin Kostur í Kópavogi neitaði þátttöku í könnuninni, samkvæmt frétt á vef ASÍ en Kostur reyndist oftast með hæsta verðið í síðustu verkönnun ASÍ.
Hungradur (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 18:38
Dossa: díll!
Fannar: Ég held að þetta sé ein af dauðasyndunum 7!
Inam: Hamingjan við að borða þetta var líka svo gífurleg að hún var skráð í sögubækur.
Hungraður: En... en.. Hungraður!!! Það er eins og að segjast ekki vilja elda með kryddum eins og kanil, cumin... karrý, af því að það er ekki íslenskt!!! Það er eins og að segja að þú viljir ekki prófa að borða inverskan mat, eða elda á wok pönnu...
...ég gæti ekki látið girnilega uppskrift framhjá mér fara af því að mælieiningin er ekki mér að skapi. Það þykir mér heldur... kjánalegt!
Ég reddaði þessu bara og keypti mér al-amerísk bollamál
Svo er einn bolli líka 2,4 dl tæpir. Nú geturðu búið þær til
Elín Helga Egilsdóttir, 3.12.2010 kl. 19:55
Elín smelín¨!
Setur maður ekki bara hneturnar "hráar" (óristaðar) útí gumsið og svo það á hveitidótið. Ég held ég verði að búa þetta til.....
inam (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 20:41
Ahh... gott að hafa svona frænkuaugu. Laaangsamlega best að rista hneturnar smá, 10 mín á 175. Passa samt að þær brenni ekki. Kemur önaðslegt bragð af þeim þannig.
Svo, af því allir ofnar eru spes, þá fylgjast svolítið með gumsinu inn í ofni og passa að henturnar þar, brenni ekki. Ef þér þykir það vera orðið of dökkt, þá setja álpappír yfir.
Annars á gumsið ofaná að vera svolítið "loose" og hlaupkennt. Það harðnar + seigast með ísskápsveru!
Elín Helga Egilsdóttir, 3.12.2010 kl. 21:17
Klárlega dauðasynd :)
Fannar Karvel (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 08:47
Thakka fyrir skemmtilegt svar, sem ég las brosandi. Samlíkingin med krydd og mál er nú svolítid langsótt.
Til eru a.m.k. tvennskonar bollamál. Bresk og ammrísk (cirka 2,8 dl og 2,4 dl)
http://www.eclecticcooking.com/metric.htm
Best er audvitad ad fá allar uppskriftir uppgefnar í lítrum, desilítrum, grömmum og kílóum o.s.frv.
Matskeid = 15 ml
Teskeid = 5 ml
Kryddmál = 1 ml
Hungradur (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 21:50
mhmm þetta er eigilega of girnilegt og skal prófast!!
ég hef samt alltaf hunsað hnetur eftir fresta megni og þess vegna helst ekki borðað t.d. snickers nema af brýnustu "nauðsyn" en nú hef ég þroskast, m.a. af því að lesa bloggið þitt og finnst rosa gott að eiga hnetur til að maula þegar nartþörfin gerir vart við sig :p
HallaS (IP-tala skráð) 5.12.2010 kl. 19:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.