4.8.2010 | 20:51
Allskonar gleðilegt skemmtilegt
Sjáið sjáið sjáið!!
Nýju, nýju glæsilega geypilega æðislega ofurfrábæru BUDDHA skálarnar mínar! Ohhhhhh sjááið bara hvað þær eru djöðbilaðslega fínar!!
Blá!
Hvít!
Ómægod hvað það verður gaman að borða grautinn upp úr þessari snilld! Haldið þið að skeiðin mín verði ekki glöð að hitta Buddalicious? Sem minnir mig á það - þarf að finna nafn á hana... og já, það er mjög nauðsynlegt að persónugera átáhöldin sín.
Glæztar! Sjáið, sjáið bara. Þær eru með handfangi gott fólk.... hand... fangi!
*tilhlökkunartryllingsstapp*
Svo er það nýi æfingafélaginn minn. Herra GYMBOSS.
Interval tímatakari með meiru og kemur til með að aðstoða kvendið við spretti, hring-/stöðvaþjálfun og hvaðeina. Hlakka til að nota þetta dýr. Mjög einfaldur og þægilegur í notkun, klemmist á æfingafatnað, engin vikt í þessu. Stoppklukka í leiðinni. Jájá. Kvekendið víbrar und alles klar svo þér er óhætt að ipodda á meðan þú púlar.
Hvernig getur maður án svona tækja verið? Eins og með GSM. Hvað gerði alheimurinn fyrir tíma GSM.... og kaffi... og ostaköku... og rauðlauks...
Jú heyrðu, svo keypti ég svona brauð! Aftur, fyrir handlegg, sálarbút, annan augasteininn, hægri nasavænginn og eina freknu. Verður forvitnilegt að prófa - á víst að vera öllu betra og stórkostlegra en heilhveiti og spelt. Hvað veit maður. Ekkert ger, engin egg eða mjólk, engin viðbætt fita.
Ahhh... allskonar gleðilegt skemmtilegt.
Kvöldmaturinn var annars svo ómerkilegur að það tekur því varla að nefna hann. Skálagleðin var svo gífurleg að grænmeti, allsbert og óunnið, var gúllað beinustu leið út úr William Shatner ásamt kjúlla og brúnum grjónum.
William Shatner er sumsé ísskápurinn. Af hverju William Shatner? Jú, af því að af einhverju ástæðum þykir mér maðurinn alltaf líta út eins og ísskápur.
Ferkantaður.
Denny Crane er bestur.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Heilsa, Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:56 | Facebook
Athugasemdir
á líka svona gymbox það eina sem mér finnst leiðinlegt við hann að það er ekki hægt að stilla bara víbring. því það heyrist frekar hátt í píppinu... en snilldar tæki engu að síður..
oog GeHeðveik skál HAHAH
Heba Maren (IP-tala skráð) 4.8.2010 kl. 23:41
Það er reyndar hægt að stilla þennan á einungis víbríng en hann svoleiðis spænir upp batteríið. Ætlaði í svaðalegar interval æfingar í morgun en nei - 4 mínútur og *dáinn*.
Ekki alveg að fíla það!! Ætla að prófa aftur og sjá hvort þetta hafi verið eitthvað tilfallandi.
Og já... hohoooo... þessar skálar eru nýjaðasta uppáhalds uppáhald.
Elín Helga Egilsdóttir, 5.8.2010 kl. 09:16
nú er það hægt .? bara titring? þarf að kanna það aftur því mér sýndist ekki.
en allavegna.. þá vorubatteríin ný hjá þéR? ég er búinn að nota minn oft og patteríin enn góð..
Heba Maren (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 10:26
Hæ, hvar fær maður svona brauð ??
Karen (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 11:30
Heba: Heyrðu já, það eru 3 stillingar. Vibringur, píp og víbríngsbíp ;P
Karen: Ég fann þennan hlunk í Hagkaup
Elín Helga Egilsdóttir, 5.8.2010 kl. 11:37
Hæ
Hvar fékkstu þessar yndislegu skálar ?
Steinunn (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 14:42
Það er linkur á síðuna með skálunum hjá henni..finnst þær einmitt æði! en semsagt 19$ + flutningskostnaður + tollur + vsk ekki satt? :/
Magga (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 15:06
jebb
Kostuðu allt... allt of mikið!
Allt of mikið...
...en með smá aðstoð og afmælispeningum þá lét ég þetta eftir mér. Ég bara varð.
*shaaame*
Elín Helga Egilsdóttir, 5.8.2010 kl. 15:17
En flottar eru þær! ;) æ það er nú allt í lagi að splæsa á sig annað slagið þegar manni langar virkilega í eitthvað, sérstaklega afmælispeningum! :)
Magga (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 15:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.