1.8.2010 | 12:44
Þegar lífið gefur þér ferskju...
...borðaðu hana!
Sjáið þetta bara!
Æðislegur á litinn þessi ávöxtur!
Ferskjuketið var svo ákkúrat... alveg... uss! Nohm! Svona líka ofurmeyrt og mjúkt og djúsí! Bráðnaði upp í mér!
Segi það satt - ég hefði getað sogið þennan ávöxt upp í gegnum rör!
Úff hvað þetta var algerlega fullkomið ferskjudýr! Alveg... fullkomið!
Samt ekki búið ennþá! Ég sé enn ket.
Njóta hvers bita Elín.... njóóta!
NJÓÓÓTA!
Ohhh... búið!
Fullkomlega rétt þroskuð, fullkomlega súr, fullkomlega sæt, fullkomin áferð, föööllkomlega fín.
Mikið ofboðslega eru ávextir svakalega góðir þegar þeir eru... jah... góðir! Partý fyrir bragðlaukana!
Mikil forréttindi að fá að bíta í svona gersemar!
Note to self: Þarf að kaupa fleiri ferskjur!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Heilsa, Lífstíll | Facebook
Athugasemdir
Næst þegar þú færð þér ferskju eða nektarínu prófaðu þá að brjóta steininn, innihaldið mun koma þér skemmtilega á óvart!
Klara (IP-tala skráð) 3.8.2010 kl. 18:05
Núh! Er hægt að borða það?
Þetta skal kannast.
Elín Helga Egilsdóttir, 3.8.2010 kl. 19:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.