18.5.2010 | 03:04
Chia fræ í grautinn minn
Nýja ástin í lífi mínu!
Chia fræ! Nýjasta æðið, súperfæðið, æðiberið, æðisnæðið, Ellufæðið. Stút glimrandi full af andoxunarefnum, hollri fitu, trefjum og próteinum. Ofurefni í tonnatali - næstum. Betri en hörfræin elskulegu (og ekki eru þau amaleg greyin) bæði hvað varðar næringu og, fólkið mitt, ÁFERÐ að mínu mati! Líka hægt að nota chia fræin í allt sem hörfræin eru notuð í. Lesa skal nokkra punkta um þetta eðalfræ hér!
Tek fram að 280 kj. eru um það bil 70 hitaeiningar. Sumsé, tæplega 70 he. í hverri msk. af chia fræum.
ÉG ER ORÐLAUS... af einskærri hamingju og grautargleði!
Búin að vera að "rekast" á þessi fræ ítrekað í erlendum bloggheimum og var orðin ansi forvitin. Hef enn ekki fundið þetta á Íslandinu af einhverjum ástæðum en jújú, haldið þið ekki að Ástralían hafi orðið mér úti um poka. Ég greip hann með andköfum og massífri bakfettu, hljóp í átt að hómsteð og það fyrsta sem ég gerði var að tilraunast með þessar krúttusprengjur. Ó... GUÐ! Hvað er EKKI hægt að gera við þessa snilldar afurð? Ef fræin eru sett í vatn þá drekka þau vökvan í sig og mynda gelhjúp á um það bil 5 mínútum.
Ómægod ómægod ómægod tilhlökkunarspenningur! Sjáið þetta bara!
Þessu er t.d. hægt að smyrja á brauð, nota í sjeika, HAFRAGRAUT, skyr, jógúrt, sósur, dressingar... og áferðin er GEGGJUÐ! Þið sem hafið smakkað sago graut - jebb, alveg eins og sago! Þykkir, bætir, kætir með crunchi! Svo er líka bara hægt að nota þau hrein og bein, gelaðferðin kætir mitt átvagl þó töluvert meira.
Krakkar mínir, leitinni er hér með lokið. Þannig er það bara. Hinn fullkomni rjómakenndi hafragrautur var eldaður, uppgötvaður, smakkaður, borðaður, elskaður, smjattaður, étinn upp til agnarofurdofa og saknað sárt eftir átið í morgun... dramað var svo gígantískt að ég grét ofan í grautarskálina.
Sjóða saman fyrir einn hafragrautrsofurgúbba
1/3 bolli hafrar
1/2 gróflega stappaður banani
1 msk chia fræ
ögn af salti
1/3 bolli undanrenna/léttmjólk
1/3 bolli vatn (Mjög þykkur grautur, ef þið viljið hann þynnri nota 1/2 bolla vatn)
Hræra svo vanilludropum samanvið í restina.
Af því ég bjó til graut fyrir fleiri en bara mig bætti ég ekki kanil út í dýrðina fyrr en ég fór að skreyta minn skammt sjálf.
Bláber og jógúrt ásamt nokkrum óséðum möndlum.
Þetta var... er BESTI grautur sem ég hef smakkað! Ég ætla að tilraunast meira á næstu dögum og koma með almennilegri myndir/leiðbeiningar/allt sem er undursamlegt í heiminum!
Koma svo, allir að panta sér poka af þessu núna. Þið sjáið ekki eftir því. Veeerðið svo að láta mig vita hvað ykkur finnst, ég er spenntari en krakki í nammibúð að fá að heyra frá ykkur ef þið látið af þessu verða.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Hafragrautur, Holla fitan, Uppáhalds | Breytt 24.9.2010 kl. 13:32 | Facebook
Athugasemdir
I luuuuuv you - my little Chia-dealer
dossan (IP-tala skráð) 18.5.2010 kl. 11:09
ertu ekki örugglega að kaupa upp allar birgðir þarna úti og koma með þér heim??
antje (IP-tala skráð) 18.5.2010 kl. 13:49
Elskurnar mínar...Chia seeds eru til í Heilsuhúsinu ;-)
Helga (IP-tala skráð) 19.5.2010 kl. 20:03
Nú hva! Fór þangað fyrr í vetur og enginn vissi neitt!!
Kosta nú samt án efa handlegg og nýra ef ég þekki íslenskan "heilsumarkað" rétt.
Ástralskar birgðir verða upp keyptar Antje... ójá!
Elín Helga Egilsdóttir, 19.5.2010 kl. 22:15
Thakka fyrir mjög fraedandi og gódan pistill og myndir. Vissi ekkert um thessi frae. Sannköllud D vítamín bomba. Gott fyrir húd og heila.
Ég borda sardínur thví thaer innihalda mikid D vítamín og eru án kvikasilfurs vegna thess ad thaer eru framarlega í faedukedjunni.
Gott ad fá hlekkinn af einmitt theim ástaedum sem thú nefndir. Faeduverd á Íslandi er vidbjódslega hátt.
Vída erlendis er haegt ad kaupa mat fyrir 1/10 af thví sem hann kostar á Íslandi.
Á medan íslendingar kaupa kílói af gulrótum fyir 899 kr. !!! er haegt ad kaupa 10 kg. erlendis fyrir sömu upphaed. HELVÍTIS OKUR (hraesni, spilling og okur...ekki undarlegt ad Ísland sé í djúpum skít)
Fékk thessa mynd lánada frá thessari ágaetu konu án thess ad spyrja...ég vona ad hún fyrirgefi mér:
http://www.flickr.com/photos/mariaroff/3845079108/
// var vars = {}; vars.npid = "n19229191"; vars.bgcol = "#2e2e2e"; vars.initPage = "0"; document.getElementById('npBody').style.overflow = 'hidden'; var params = { scale:'noScale', salign:'lt', menu:'false',allowfullscreen:'true', wmode:'window', bgcolor:'#2e2e2e'}; var attributes = { id:'netpublicator3', name:'netpublicator3' }; // give an id to the flash object swfobject.embedSWF("http://np.netpublicator.com/Netpublicator3.swf?nocache=2010-05-24-05-00-26", "flashContent", "100%", "100%", "9.0.0", "http://np.netpublicator.com/js/expressInstall.swf", vars, params, attributes ); if (swfmacmousewheel) { swfmacmousewheel.registerObject(attributes.id); } var playerVersion = swfobject.getFlashPlayerVersion(); // returns a JavaScript object if( playerVersion.major < 9) { document.getElementById('npBody').style.overflow = 'auto'; }Hungradur (IP-tala skráð) 24.5.2010 kl. 15:04
úff já ég fæ bara aðsvif þegar ég sé verðin í íslenskum heilsuverslunum!
Vil halda mínum útlimum, innyflum og hvítu svo ég hrökklast oftar en ekki út úr verslunum
En ertu sest að þarna hinu megin kvendi? Eða er maður kannski of góðu vön með daglegu bloggin þín? .. hvort heldur sem er vona ég að þú hafir það ógurlega gott
Ásta (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.