9.3.2010 | 19:27
Þorskur og fallegir litir
Af hverju ekki skella í fisk í kvöld? Þarf ekki að vera soðin ýsa og teitur, þó svo það sé að sjálfsögðu alltaf ágætis át.
Steikja papriku, hvítlauk, sveppi, döðlur og svartar ólívur á pönnu, salta og pipra. Flott... ekki satt?
Sjóða couscous og koma fyrir í eldföstu móti, hella grænmetisgumsi þar yfir.
Léttsteikja þorskinn á pönnu, krydda eftir smekk.
Raða fallega yfir grænmetið - mjög mikilvægt að það sé fallega raðað! Munar öllu bragðlega séð.
Setja tómatsneiðar yfir hvert fiskstykki og ost yfir hverja tómatsneið.
Inn í 175 gráðu heitan ofn í 20 - 30 mín, eða þangað til fiskmetið er eldað í gegn.
Voila! Gullfallegafínt! Guuuullfallega fínt... og gullfallegaofurgott á bragðið!
Takk fyrir mig
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Fiskur, Kvöldmatur, Uppáhalds | Breytt 24.9.2010 kl. 13:07 | Facebook
Athugasemdir
Man oh man...wow! Tárar í augum...Elín...this is beautiful!
Hungradur (IP-tala skráð) 9.3.2010 kl. 20:16
NAMM þetta er æði ;-) hlakka til að prófa þetta
Lísa (IP-tala skráð) 9.3.2010 kl. 20:38
NAMM hvað þetta er girnilegt! Verður prófað hið fyrsta!
Fanney Dóra (IP-tala skráð) 9.3.2010 kl. 22:08
Jummí - þetta væri ég alveg til í að prófa!!
Frk. Laxmýr (IP-tala skráð) 9.3.2010 kl. 23:01
Ég er alltaf að bíða eftir uppskrift þar sem þú marinerar eitthvað í Gammel Dansk. En kannski er það ekki meant to be..
Egill Viðarsson (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 00:50
Oh já, þetta var ekkert nemta gott!
Egill: Bwahahahaa! Ef ég einhverntíman marinera eitthvað uppúr Gammel Dansk þá mun sá réttur vera nefndur í höfuðið á þér!
Elín Helga Egilsdóttir, 10.3.2010 kl. 10:31
Þorskurinn er æði og er á uppáhaldsfiskréttalistanum mínum. Hef verið dyggur aðdáandi þinn um nokkura mánaða skeið og þú átt hrós skilið fyrir að koma öllum hollu og girnilegu uppskriftunum þínum frá þér á svona skemmtilegan hátt. Snilldarpenni og frábær ljósmyndari. Datt inn á síðuna þína á háréttum tíma og þú átt nú smá þátt í því að ég er búin að missa slatta af mör :-)
Guðbjörg G. (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 19:23
Guðbjörg: Mikið er ég svakalega glöð að heyra þetta og til lukku með árangurinn Þú gersamlega reddaðir deginum fyrir kvendinu - æði!! Takk kærlega fyrir mig!
Elín Helga Egilsdóttir, 10.3.2010 kl. 21:06
Þessi réttur er suddalega góður:) Prófaði hann áðan og meira að segja anti-heilsurétta karlinn minn elskaði hann.
Vildi bara láta þig vita:)
Dóra (IP-tala skráð) 11.3.2010 kl. 22:22
Dóra: Snilldin einar! Hann er nefnilega assgoti ógeðslega fínn þessi :)
Elín Helga Egilsdóttir, 12.3.2010 kl. 11:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.