17.2.2010 | 09:56
Alltaf að hræra saman
Ég er ein af þeim! Viðurkennt, sýnt og sannað! Ég gæti gúmslað saman allskonar mat, hrært í graut og líkað vel - mörgum áhorfandanum til mikils ama og ógleði í hjarta.
Skyr.is. Ég hef rætt þetta mál mín kæru og fer ekki nánar út í það en mikið assgoti þykir mér þetta vond afurð. Væmnara verður það varla. Hreint Kea er svo langsamlega best en þar sem ég hef ekki úr Kea að moða varð Skyr.is fyrir morgunmatsvalinu.
Ofan í skál ásamt graut og kanil.
Hrært saman.
Skreytt.
Þetta var barasta ágætt. Slapp þó svo væmnisbrgaðið hafi öskrað á mig allan tímann.
Grauturinn gerir kraftaverk. Ég segi það satt.
Njótið dagsins fína fólkið mitt.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Eftir æfingu, Hafragrautur, Skyr | Breytt 24.9.2010 kl. 12:38 | Facebook
Athugasemdir
Mér finnst þessi afurð ekki eiga það skilið að kallast skyr svo væmin og vond er hún, hreint Kea fyrir mig takk - það er alvöru
Vala Árnadóttir (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 10:42
Ákkúrat! Skyr.is er algerlega nasty og hræðilegt!
Elín Helga Egilsdóttir, 17.2.2010 kl. 10:44
Úff þarf greinilega að fara að bæta mig í skyrátinu. Er svo nýbyrjuð að borða þetta að eina sem ég hef getað komið ofan í mig er vanilluKEAskyr. Þarf að gerast pro og prófa hreint... :S
R (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 11:37
þetta skyr.is er bara gubb hægt að fá sér frekar glas af eggjahvitum með aspartami...
en askoti er hræringur góður .. maður borðaði þa mörgumsinnum i gamladaga hjá ömmu nema hvað þá var klárlega gossi af sykri stráð yfir :)
Heba Maren (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 12:23
Hæhæ
Býrðu ekki alltaf til hafragrautinn eða notaru tilbúna í örbylgju ofninum ?
Karen (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 14:24
Ég bý grautinn alltaf til sjálf, jú - nema þegar ég er sein fyrir þá á ég það til að stelast í vinnugrautinn.
Nota aldrei þessa tilbúnu í litlu pökkunum. Hægt að fá mér epla/kanilbragði ofr.
Elín Helga Egilsdóttir, 17.2.2010 kl. 15:10
Ok
ennnnn hvað hefuru eggjahvíturnar lengi í örbylgjunni áður enn þú setur þær út á grautinn ?? (alger nýgræðingur í þessu haha)
Karen (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 15:55
Ég skelli hvítunum í disk, blanda höfrum þar við, set smá vatn út í og voila. Hræri smá saman, inn í bylgjuna í 2 - 3 mínútur. Tek út í eitt eða tvö skipti til að hræra.
Svo vanilló, kanilló, salt, krydd, ávexti, grænmeti... bara hvað sem er
Elín Helga Egilsdóttir, 17.2.2010 kl. 16:34
úff ég fæ gubbuna bara við lyktina af vanilluskyr.is, borðaði 17 milljón dósir í kringum aldamótin og síðan hefur þessi afurð ekki komist í radíus við mig.... tja reyndar engar mjólkurvörur en það er önnur saga ;-)
Ragnhildur Þórðardóttir, 18.2.2010 kl. 12:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.