Hvítkálshakkhræra

Ég veit ekki hvað ég get kallað þetta annað. Örugglega til eitthvað fínt orð yfir gumsið en þetta er það besta sem ég fann upp á í bili.

Hvítkáls hakkhræra

Ég notaði í gumsið púrrulauk, 1 hvítlauksgeira og venjulegan lauk. Steikja allan lauk upp úr olíu í 2 - 3 mínútur. Bætti þá út á pönnuna káli og sveppum og steikti þangað til kálið var orðið nokkuð mjúkt en samt ekki í döðlum. Kryddaði svo með pipar, kannski 1/2 tsk sojasósu, agnarögn af balsamic ediki, engifer og cumin, hrærði saman og bætti þá forsteiktu hakkinu út á pönnuna. Lét malla þangað til hakkið var orðið heitt í gegn. Ahaa.. einfalt, fljótlegt, hollt, gleðilegt.. ofl. vel valin lýsingarorð.

Hvítkáls hakkhræra

Ég er búin að vera hugsandi um hvítkál, steikt/soðið/hitað/eldað í um það bil viku. Ég bara varð að slökkva á hvítkálsgarginu áður en öll skilningarvit færu forgörðum. En þetta var samt gott... ég segi það satt! Sætur laukur, sætt brakandi kál, samhljómur ofurkrydda. Kem til með að hræra mér í svona aftur! Bæta við grjónum, jafnvel möndlum/valhnetum, ponsulítið af púðursykri og meira gúmmulaði. Mmmm.... 

Mmmm hvítkál

Annað í fréttum:

Hleðsludagar hafa nú verið forfærðir yfir á hina alheilögu nammidaga! Laugardaga! Halló morgunverðar heilvheiti bananapönnsur, kvöldmatar humarpasta og jú..., ég er ekki búin að gleyma því - roastbeef hádegisbeygla!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, ég er Geiri - Hvítlauksgeiri

Dossa (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 22:49

2 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Hohohoho

Elín Helga Egilsdóttir, 19.11.2009 kl. 06:17

3 identicon

Hvar kaupirðu hakkið?  Er það ekki mjög fitusnautt? Ragga var búin að nefna staðinn á blogginu sínu en ég man það ekki   Tók einmitt út hakk í morgun og á hvítkál í ísskápnum.  Ætla að elda eitthvað svipað þínu gúmmelaði í kvöld! Gleði gleði

Soffía (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 10:50

4 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

http://kjothollin.is/

Þessir snillingar selja bara 4% feitt hakk og yyyndislega fínt roastbeef. Ég er svo gott sem í áskrift hjá þeim  Já. Þetta var sérstaklega gleðilegt gums. Hitti beint í hvítkálslöngunarmarkið!

Elín Helga Egilsdóttir, 19.11.2009 kl. 11:03

5 identicon

Þúsund þakkir, tékka á Kjöthöllinni   Mmmmm..... hakkrétturinn var algjör snilld, nammi namm

Soffía (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 19:53

6 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Það var nú minnsta málið - og já, svona gums er sko laumulega gott!

Elín Helga Egilsdóttir, 19.11.2009 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband