Helgin í myndum

Eins og ég hef áður sagt.

Safnað í sarpinn!

Byrjum á byrjuninni!

Cool hwhip

Við urðum að kaupa þetta sökum Family Guy!

Við urðum að smakka þetta sökum Family Guy!

Loft... í dós! Sætt loft... í dollu? Borðaðu 1 svona á dag (helst ekki samt) og eftir að þú lætur vaða yfir móðuna miklu mun skrokkurinn haldast í fullkomnu ástandi næstu 3000 ár á eftir.

Cool hwhip

Slóð tortímingar og eyðileggingar...

tortímingarslóð

...og efra vinstra horni myndarinnar hér að ofan hvílir siiiiiig...

nom

...ójöah!

Nammiskál sem búið er að fleyta súkkulaðinamminu af. Ég er súkkulaðisek. Ókei. Þessi skál er ekki alveg minn tebolli en allt er nammi í harðindum gott fólk!!

Hmm hmm, harðindum!?!

tortímingarslóð

Höldum áfram.

Þessum var svo stútað síðar sama kvöld að auki við, jebb, að ómynduðu auki við bragðaref, 100 tonn af hnetum og súkkulaðikökufudge með pistasíum sem var gómsætara en þetta gómsæta þarna um árið!

Ofnfröllur

Sukk á sukk ofan á sukkinu sem var sukkað á!

Mikið sukk!

Svo var haldið af miðbæ brott og upp í sveit þar sem beið eitt stykki hótelherbergi á Rangá. Það var notalegt. Virkilega ljúft. Æðislegt hótel, alger friður, út í miðju algleymi.

Þessi sveitarúntur er einvörðungu Ernunni minni að þakka - Heart

Þessi tók á móti gestum í anddyrinu! Hann var hress.

(Er sumsé að tala um manninn þarna vinstramegin á myndinni. Svoleiðis reitti af sér brandarana.)

Euan og Bjössi

Flottur rass

Þar sem sukkdagurinn var haldinn töluvert hátíðlegri en þurfa þykir slátraði undirrituð þessu líka fína kjúllasalati! Ekkert til að gráta úr sér augun yfir af hamingju en vel útilátið og mikið af grænmeti!

Eðalfínt kjúllasalat

Euan fékk sér slumburger og að sjálfsögðu gott fólk. Að sjálfsögðu rændi ég bita... um! Bitum.

Og frönskum.

Næstum öllum frönskunum en hver er að telja?

Glæstur slumburger

BBQ slumburger

Og það má að sjálfsögðu ekki gleyma, þó svo ég hafi verið voða þæg með kjúllasalat í ferðatöskunni þetta kvöldið, að nokkrum súkkulaðirúsínum, Picnic og *hóst* ís *hóst* var sporðrennt.

ÓKEI.. höldum áfram. Sjáið hvað það er fallegt veður.

APP-EL-S-ÍN

*egomaniac*

APP EL - S - ÍS

Svo skulum við ekkert ræða morgunverðarhlaðborðið!

Ég elska.... ég eeeelska morgunverðarhótelmegahlaðborð jafn mikið og ég elska barnaafmæli og farmingar/útskriftarveislur!

Þar finnur maður allskonar... af allskonar! Öööölsk!

Morgunverðarhlaðborð Rangá

Morgunverðarhlaðborð Rangá

Morgunverðarhlaðborð Rangá

Morgunverðarhlaðborð Rangá

Morgunverðarhlaðborð Rangá

En sökum áðurnefnds ofursukks og smásukks degi og dögum áður, var þetta morgunmaturinn minn!

Getið margfaldað þennan disk með 3!

Hann var... ofur!!

Morgunverðarhlaðborð Rangá

Öðruvísi slóð eyðileggingar!

tortímingarslóð

Skruppum svo til Eyja í leiðinni og upplifðum Landeyjahöfn!

Gleði að geta í raun "skroppið" til Eyja. Magnað.

eyjarahara

Fótboltinn víðfrægi

Dramatík í eyjum

Hann er ekki sannfærður... yfir hverju er enn óljóst!

Hressleiki

Ahhh... góð, sveitt helgi.

Borðaði þó líka duglega og hollt og æðislegt eins og skyr og hnetur og milljón grænmeti og allt sem er eðall.

Ákvað bara að taka til svínaríið því það er svo miiiikið skemmtilegra!

Eins og sumir, sem horfa á formúlu 1, og vonast eftir árekstrum.

  • A: "Hvernig var keppnin?"
  • B: "Æjjiii, ekkert aksjón. Enginn sem klessti á dekkin eða neitt."

Þannig að græðgi, upp á sitt besta, í formi áts = aksjón!

Best að koma sér í gírinn fyrir næstu tvo mánuði. Húhhh!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svei mér þá, ég held ég hafi fitnað við að lesa þessa færslu heheheh :)

Barbietec (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 11:16

2 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Uss, það er þó betra að halda en að vita með sótsvartri vissu. Hahh!!

Ég gerði mikið meira en bara að fitna, blása út, fnasa og trodda. Ég endurtók verknaðinn í hvívetna... og naut vel!

...og kem án efa til með að endurtaka á nýjan leik við tækifæri

Elín Helga Egilsdóttir, 28.6.2011 kl. 12:36

3 identicon

Ég þekki þig. Ætla ekki að segja hver ég er samt. Þú kemst að því.

Rakst á þessa grein http://mbl.is/smartland/pistlar/raggar/1166564/  og hélt, svei mér þá, að hún væri að lýsa þér á tímabili.

Ef það er sól, þá verðurðu glöð. Ef það er gott að borða, þá verðurðu glöð. Ef þú sérð fallega mynd, þá verðurðu glöð.

Það gæti bara vel verið að þú sért ein af þessum hamingjusömustu manneskjum í heiminum elsku Ella mín. Meira að segja það, að sjá fyrstu randaflugu sumarsins kætir þig.

Þú ert best :)

Þekki þig (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 15:17

4 identicon

oh hvað mér finnst gaman að lesa pistlana þína :) Þú kannst sko að sukka með stæl :P

 ég og eiginmaðurinn skruppum til eyja í hittifyrra í sumarfríinu okkar, vorum í 2 nætur. Við komum þangað, keyrðum svona 4 hringi um eyjuna og skoðuðum allt og þá var liðinn klukkutími!!! en samt voðalega kósý :)

Sylvía (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 21:05

5 identicon

hahahahahha þegar ég sá Cool whip í Hagkaup um daginn "heyrði" ég endalaust í Brian í hausnum á mér.... Cool wwwhip! Cool Whhhip...... snilldin einar

Hulda (IP-tala skráð) 29.6.2011 kl. 11:02

6 identicon

hahaha ég hló upphátt af stólnum sem Euan situr á!! hahahaha :D

hlýtur að hafa verið æðisleg helgi! :)

ohh ég er orðinn alvarlega svöng eftir þessa færslu, hlakka til að fylgjast með námskeiðinu hjá karvelio! :D gúd lökk

Dísa ástralíufari (IP-tala skráð) 29.6.2011 kl. 18:36

7 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Þekkir mig: Það er aldeilis sérdeilis. Þú ert samt ekki búin(n) að gefa mér neinar vísbendingar "in real life" hver þú ert mitt... kæra. Ekki Dossa (búin að spyrja). Erna, þú?

Sylvía: Ohhh, sukk er gleðiblæti extraordinaire. Og já, Eyjar eru ekki stór staður hahh, en alltaf notalegt að koma þangað.

Hulda: hahahahah... I know!! Cool hwhip! Eina ástæða þess að ég keypti þetta glundur.

Dísa ástralíuskvísa: Þetta var gleðihelgi mikil og bestu þakkir fyrir hvatningarorðin, eins gott að sparka í sitt eigið rass ef vel á til að takast :)

Elín Helga Egilsdóttir, 30.6.2011 kl. 09:35

8 identicon

What!! Komstu til eyja og heilsaðir ekki uppá mig??!!! Hrmpf... En allavega gott þið fóruð varlega og slösuðuð ykkur ekkert... ;)

Þorbjörg (IP-tala skráð) 30.6.2011 kl. 22:25

9 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Júúú, ég prufaði að hringja og allt en svo kom í ljós að þú varst ákkúrat í bænum þessa helgina!!! *grát*

Við fórum mjög varlega og átum allskonar ruslfæði ;)

Elín Helga Egilsdóttir, 1.7.2011 kl. 09:30

10 identicon

Já, alveg rétt ég var í bænum... Oh well, þið verðið þá bara að koma aftur! ;) Frábært samt að þið höfðuð það notalegt, hótel Rangá er náttúrulega æði... Ísbjörninn er líka mjög vinalegur!

Þorbjörg (IP-tala skráð) 1.7.2011 kl. 09:43

11 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Það verður haldið til Eyja í sumar ójá, með tjald (eða eitthvað annað til að sofa í/inní) og haft notalegt með ykkur. Shrimps on the baabeyy og tilheyrandi!

Þessi ísbjörn er mjög hress. Væri án efa ægilega notalegt að knúsast í svona dýri... ef það væri aðeins minna... og nýbúið að borða... og liti ekki á þig sem mat... en mjöög notalegt!! :)

Elín Helga Egilsdóttir, 1.7.2011 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband