Pizzadeigið

Með greini!

The deig!

MÁNU-DEIG!

Þetta er kannski allt sem er hvítt hvítt deig, ger og allur pakkinn, en útbúið heimavið, frá grunni og allt náttúrulegt og krúttaralegt. Við vitum amk hvaða hráefni fela sig í þessu gleðispreði.

Eins og með suma pistla sem ég set hérna inn, pönnsur/kökur/nammi og önnur tilheyrandi óhollustustig í bland við sykursjokk, þá á þetta deig fullkominn rétt á sér. Ójá. Ég fann þetta á netrápi fyrir 100 árum en hreinlega man ekki hvar, get því ekki vitnað í snillinginn sem krumpaði þessu saman til að byrja með!

Af hverju:

  • er ég að deigafsaka mig hérna? -Eitthvað sem ég þarf ég að eiga við heilhveiti-spelt sjúklinginn hið innra.
  • set ég, laumulega, inn uppskrift af "pizzadeigi" á mánudegi? -Af því mér er umhugað um ykkar pizzuheilsu og vil ekki að þið farið á deigmis við þessa snilld og ég vil endilega að þið fáið ykkur pizzu næstu helgi og þessi hveitiklessa þarf ást og umhyggju og hún er æði og mér þykir bara svo hryllilega vænt um ykkur og aaaaahaaamen!

Allavega!

The deig!

Þarf að gerjast i 3 - 4 daga, en ó svo mikið þess virði.

Má nota el straxó en ó... óhóhó! Látið það bíða.

  • 1,5 bollar volgt vatn, en þó þannig að það sé kalt ef þú potar í með fingrinum
  • 1 tsk þurrger
  • 4 bollar hveiti
  • 1 tsk salt
  • 1/3 bolli Extra Virgin Olive Oil
Hita ofn í 250 - 260 °C.
  1. Dustið þurrgeri fallega yfir vatn og látið bíða á meðan þið framkvæmið atriði 2 og 3 hér að neðan.
  2. Hræra saman hveiti og salti í skál
  3. Meðan hrærivélin er að dúlla sér, og hræra hveitið betur saman við saltið, hella ólífu olíunni útí þangað til hún hefur sameinast hveitikrumsinu
  4. Hella germixtúrú út í herlegheitin þangað til rétt svo blandað saman- deigið verður mjög klístró og blautt. En þannig á það að vera. Jebb jebb.
  5. Smyrja aðra skál með olíu - hafið hana í stærri kanntinum. Treystið mér.
  6. Útbúa kúlu úr deiginu
  7. Hella deigkúlunni í olíuborna skálina og snúdda svo öll kúlan verði þakin olíu
  8. Breiða plastfilmu vandlega yfir skálina og henda inn í ísskáp þangað til þú þarft að nota. Deigið á eftir að stækka um amk. helming, ekkert svaðalega, en hafið þó skálina stærri en minni.
  9. Best að útbúa deigið með dags fyrirvara, 2 eða 4 dagar eru jafnvel æskilegri
Nýkomið ofurpizzadeig úr kæli

 

Flehetja út

Sósa.

Átti ekki pizzasósu og nennti ekki að búa til frá grunni.

Hunts tómatsósa, basil, oregano, salt, pipar og smávegis sterkt Jamie Oliver pesto.

Wunderbar!

Sósa

Kom út hjartalaga... aaalveg óplanað.

Hjartalaga pizza

Ofurpizza

Prufubiti

PIzzadeig

Smá meira smakk.

Verksummerki

Verksummerki.

Og aðeins meira smakk

Stórskaddað eintak...

...en stórgott á bragðið og pizzuáferðin, el perfecto!

Stórsködduð pizza

Kem til með að nota þessa snilld um ókomin pizzaár... eða þangað til ég finn eitthvað sem gæti mögulega verið betra!

Ég er samt ekki viss um að það takist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

750ml vatn

1 msk þurrger

1 msk salt

1 kg hveiti

Blanda geri, vatni saman. bæta svo hveiti og salti við, hnoða..

Láta standa á borði í 2 tíma, í þeirri krukku sem að þú ætlar að geyma það í.

Svo setur þú þetta í kæli, má vera eldgamalt, nota það allt að 3 vikna, en þá er það örlítið súrt.

Þegar það á að baka, klípa af deigi, móta og láta standa í 40 mín, svo í ofn í ca 20 mín á 220 ... eða eftir smekk

Það má gera allt mögulegt úr þessum grunni, ítalskt brauð, hvítlauksbrauð, pizzu, blanda bara því við sem að þu vilt.

Svona baka ég, pizzu, brauð, bollur o.s.v.  

kitty (IP-tala skráð) 4.7.2011 kl. 10:54

2 identicon

hey stelpa!

Prófaðu þetta http://www.barbietec.com/subpage2.php?BloggID=3552

GEGGJAÐ! gott!

Svo er betra að gera sína eigin sósu!

http://www.barbietec.com/subpage2.php?BloggID=3557

Barbietec (IP-tala skráð) 4.7.2011 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband