Eggjahvítu tortilla með tómat-mango sósu og avocado

Enn og aftur eggjakaka. Ég bara fæ ekki nóg. Óstöðvandi eggjaátsmaskína!

Bjó mér hinsvegar til hálfgert tómat/mango mauk til að setja með inn í krumsið og húhahh, það var gott. Átti kirsuberjatómata á lager og einmana mango sem varð að nýta áður en mango guðinn kallaði það til sín. Það er annars svo lítið eftir af hráefnum hérna í höllinni að búðarferð fer að verða nauðsyn.

Ég fer um leið og ég er farin að reyna að útbúa panini úr pappakassanum hérna inn í stofu!

Það mætti þó bæta í tómat gumsið mörgum gleðilegum aukaefnum. Aukaefni verandi laukur, hnetur, krydd ofr. En gerum eitthvað gott úr því sem er til!!

Kirsjuberjatómatar, mango, hvítlaukur, egg, avocado og einhvurslags krydd, sósur og edik!

Byrjaði á því að hella soja og ediki (balsamik eða hvítvíns, helst balsamic) á pönnu ásamt 1,5 niðurskornum hvítlauksrifjum og leyfði að malla. Þarnæst fylgdu niðurskornir kirsó og niðurskorið mangó ásamt oregano. 

Mikið af orðum sem enda á -o!

Þarnæst setti ég út á pönnuna eilítið cumin og ponsulítið kúmen, saltaði, pipraði vel og leyfði að malla í smá stund. Hellti svo dass af vatni á pönnuna, sauð meira og loks smávegis maizena til að þykkja dýrið. Úr varð þessi fína sæta/súra sósa. Myndi setja út í hana hot sauce næst - eða chilli!

Beinustu leið á eggjahvítuköku og avocado fallega raðað á gleðigumsið.

Avocado og tómat/mango sósa

Aaavocado

Loka!

Ekkert nema mannasiðir! Óþarfi að hafa þetta útglennt fyrir allan heiminn að sjá!!

...

Mikil eggjakökudramatík í gangi ákkúrat núna.

Alveg að fá að smakka

Felumango!

Enn og aftur ullar maturinn minn á mig.

Ullandi eggjakaka

Fyrsti bitinn fínn!

Hreint og beint

Annar bitinn ákkúrat eins og hann á að vera! Útbjakkaður í sósu og almennri hamingju!

Mmmhmmm

El subbó!

Út um allt

En gott subbó!

Nahhmmii

Oj hvað þetta gladdi mig óstjórnlega. Fátt til á lager en reddaðist svona líka vel. Ætla að halda áfram á tómata og mangó brautinni, hún er mjög jákvæð. Bæta út í þetta meiri lauk og baunum og jafnvel pasta. Útbúa eitthvað gott salat....

...góðir át-tímar framundan. Finn það á mér!


Ég er svo spennt!

Nú eru um það bil 40 ár síðan síðasti strákur fæddist inn í þessa famelíu! Í dag var að fæðast lítill Spaghettifrændi!

Mafioso, don lilliDossValdo!

Get ekki beðið eftir því að hitta Lundann! Á erfitt með að sitja kyrr, á meira að segja erfitt með að einbeita mér að þessum gvöðdómlega góða vinnumangokjúlla!

Mangokjúklingur

Grænmetið mitt

17:30 gott fólk, 17:30 og frændinn verður augum litinn. Ohooooo ég get ekki beðið!

Allar mínar hugsanir og knúsubombur til Dossunnar minnar og Voldemort í dag.

Hihi... lítill Spaghettifrændi Grin


Bloggfærslur 27. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband