23.7.2010 | 18:42
Kvöldnart
Held það séu fáir sem ekki hafa upplifað nartþörfina sem leggst yfir líkama og sál á kvöldin. Eitthvað við það, lært eða ekki, að sitja fyrir framan sjónvarpið í gúmfeyfötum með nasl og nart og smakk og smú. Er svoddan ofur kósý stemmari yfir því.
Fyrir utan þá geigvænlega mikilvægu staðreynd, hreinlega, hversu gott það er að borða eitthvað 
Sumir eiga það líka til að tilfinningaborða, ég er ein af þeim, ofurkát og beint í kökuna. Mikið stress og ekkert fer inn fyrir varirnar. Sjokk eða súri, kaka og ísinn vinur hennar ásamt Nóakroppi og lakkrísreimum sem fylgja í kjölfarið á svaka fínni X-tra ost pizzu og tvöföldum skammti af ostafylltum brauðstöngum í smjörbaði!
Hvernig tilfinningaét kemur kvöldnarti við veit ég ekki.... EN.... Eyrún Kristín var að spögúlera í nartinu og þá þótti mér snjallt að henda í eitt stykki pistil. Kom með nokkrar tillögur að kveldnarti í "hollari" kanntinum ef maður er alveg að dreapst og ræður ekki neitt við neitt.
1. Frysta ávexti, t.d. banana, vínber og borða frosin (mjöög gott)
2. Smánart í hnetur/möndlur (passa samt skammtinn)
3. Skera niður grænmeti - t.d. litlu gulræturnar. Gætir haft með þessu einhverja létta dressingu úr 5% sýrðum rjóma, skyri eða ab-mjólk.
4. Skera t.d. niður epli og borða með smá hnetusmjöri (ekki meira en msk af smjeri) eða eplasneið með fitulitlum osti.
5. Taka fitulitla jógúrt og mixa saman með berjum/ávöxtum, setja í mót og frysta. Borða sem "ís" á kvöldin.
6. Sykurfrítt múslí/morgunkorn með undanrennu. Bara lítinn skammt - jafnvel narta í smá cheerios og rúslur?
7. Hrökkbrauð með smá kotasælu eða létt smurosti og tómatsneiðum.
8. Harðfiskur
9. Þurrkaðir ávextir.
10. ...
Bara muna - regla numero uno, dos y tres - passa skammtastærðina!
Ekki það að þessi pistill verði eitthvað merkilegri en þetta. Langaði helst að forvitnast og spyrja ykkur kæra fólk hvað þið nartið í á kvöldin til að "drepa" ofátsgrísinn nú ... eða gera honum til geðs 
Deilið með okkur nartinu fólk - endilega deilið sem mest þið megið!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.7.2010 | 14:16
Ég hef það gott
Ég hef það mjög gott takk fyrir.
Ég hef það kannski aðeins of gott?
Bootcamp á eftir - mun ekki hafa það gott þá... jú, reyndar. Kem til með að hafa það súperfínt. Þetta vinnur samt upp á móti þeirri kvöl og pínu sem bíður mín í minni nánustu framtíð og ég enda á núllpunkti.
Mikið afskaplega eru bláber samt vel af gvöði gerð!
Mmhmmm.. nohm!







