1.7.2010 | 10:28
Verkir, vitleysa og helgin handan við hornið
Ging gang gully gully gully gully wash wash
Ging gang goo, ging gang goo
Ging gang gully gully gully gully wash wash
Ging gang goo, ging gang goo
Haila, oh haila shaila, oh haila shaila haila huhu
Haila, oh haila shaila, oh haila shaila haila huhu
Shalowah, shalowah, shalowah, shalowah
Umpah umpah umpah...
Hverjum dettur þessi vitleysa í hug? Og hvað í ósköpunum var viðkomandi að borða á meðan þessum skrifum stóð? Ég væri til í einn bita af því forboðna gumsi!
Morgunmatur extraordinaire! Ef ég spreða peningum í eitthvað (annað en Ástralíuferðir), þá spreða ég þeim með engri eftrsjá í ber!
Glæsiber! Sjáið'etta!
Fulkomin HSB blanda. Hafrar, skyr, ber!
Ég þarf að kaupa mér chia fræ. Chia fræ í þessa skál myndu rota allra hörðustu morgunmats beikon- og sýrópspönnsuætur vestanshafs!
HSBC, hljómar svolítið eins og sjónvarpsstöð sem sýnir einvörðungu amerískan fótbolta!
BHSB - Blanda höfrum, skyri og berjum. Ekki jafn fallegt, alveg jafn gott.
Annað í fréttum: Er með harðsperrur í öllum skrokknum. Allstaðar. Ekki einn vöðvi sem fær frí - meira að segja nasavængirnir eiga erfitt með að blakta í vindinum. Ég hef aldrei, ég endurtek, aldrei... fengið svona svapalegar harðsperrur.
Svapalegt verandi verra en svaðalegt!
Bootcampf á eftir... mig vantar aðstoð!
Umpah, umpah, umpah...
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.7.2010 | 09:54
Gamli vin, nýi vin
Almáttugur gvöð og öll hans fylgidýr! Ef maginn hefur einhvertíman verið jafn kátur og við át á jólaönd og fyllingunni sem prýðir veisluborð Ásbúðinga 24.des....
...kynnin við einn einfaldan voru endurnýjuð í morgun við mikinn fögnuð nærstaddra. Nærstaddir verandi undirrituð og allir hennar persónuleikar. Smá salt, kanilla og vanilla - with a cherry on top!
Gamli vin, hvað ég saknaði þín geypilega!
Eitt kirsuberið ákvað þó að vera með yfirgang og frekju. Það lét svo illa, í baráttunni við tennurnar á mér, að það að það rifnaði í tvennt í hamagangnum. Held þetta hafi verið bersins leið til að hefna sín á kaldrifjuðu átinu - enda sprakk það með svodda offorsi og fítons krafti að konan í næsta húsi hefur líklegast fengið dropa af berjasafa á trýnið. Þetta þýðir samt ekki að ég borði ekki með lokaðan munninn! Ég borða hinsvegar aðeins of oft upp í rúmi - sem er óæskilegt, samanber...
...sundur-ber? Hohoho!
Ég er ekki frá því að eitt eða tvö tár hafi fallið við þennan gjörning...hvað þá átið! Enda var skálin sleikt. Einnig lofa ég og sver við grautinn almáttugan að ég borðaði ekki einn berjastilkinn. Berið var stilklaust við komu í skálina - þó það væri ekki ósennilegt að ég myndi, í epískri gratuarmóðu, éta allt sem í skálinni er á góðum græðgisdegi.
Ekki í þetta skiptið!
Svo megum við ekki gleyma hinum nýja vin! Nýjaðasta viðbótin í fíknarsafnið mitt!
Gamli vin, nýi vin - borðað í eyðimerkurvin... næstum því.
Gamli vin + nýi vin?
Ómægod!
Hugmynd.. hugdetta...
Kaffigrautur??!?!?!? Cappuccino grautur... með froðu!!! FROÐU!!!
I´ll keep you posted!
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)







