9.3.2010 | 19:27
Þorskur og fallegir litir
Af hverju ekki skella í fisk í kvöld? Þarf ekki að vera soðin ýsa og teitur, þó svo það sé að sjálfsögðu alltaf ágætis át.
Steikja papriku, hvítlauk, sveppi, döðlur og svartar ólívur á pönnu, salta og pipra. Flott... ekki satt?
Sjóða couscous og koma fyrir í eldföstu móti, hella grænmetisgumsi þar yfir.
Léttsteikja þorskinn á pönnu, krydda eftir smekk.
Raða fallega yfir grænmetið - mjög mikilvægt að það sé fallega raðað! Munar öllu bragðlega séð.
Setja tómatsneiðar yfir hvert fiskstykki og ost yfir hverja tómatsneið.
Inn í 175 gráðu heitan ofn í 20 - 30 mín, eða þangað til fiskmetið er eldað í gegn.
Voila! Gullfallegafínt! Guuuullfallega fínt... og gullfallegaofurgott á bragðið!
Takk fyrir mig 
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.3.2010 | 13:32
Grænmeti er guðdómlegt
Stundum langar manni bara í grænmeti! Þó svo þú haldir að þú viljir það ekki, þá langar þig samt sem áður í það... ójúvíst! Vittu til! Fáðu þér grænmeti á diskinn, helst ferskt og athugaðu hvort skrokkurinn æpi ekki á meira eftir fyrsta bitann! Reyndar, þá er alveg jafn mikil gleði að bíta í grænmetið hitað/grillað/soðið/steikt... grænmeti er barasta guðdómlegt!
Grænmetisafurðir eru flestallar mikilvægar uppsprettur næringarefna eins og t.d. potassium, trefja, folic sýru, A-E og C vítamína.
- Grænmeti hefur í mörgum tilfellum lágan kaloríufjölda ásamt því að vera "fitusnautt" = mjög gott að graðga í sig svolitlu af grænmeti ef þú ert að létta þig og til að "fylla" upp í svartholið.
- Matarræði sem ríkt er af potassium gæti aðstoðað skrokkinn að viðhalda blóðþrýsing. Afurðir ríkar af potassíum eru t.d. kartöflur (sætar, venjulegar), hvítar baunir, tómatafurðir, rófur, spínat, nýrnabaunir...
- Trefjar sem koma frá grænmetisafurðum, sem hluti af heilsusamlegu matarræði, hjálpa til við að minnka kólesteról í blóði og gæti mögulega minnkað líkur á hjartasjúkdómum. Trefjar eru einnig mjög mikilvægar til að viðhalda súperfínni þarmastarfsemi og allri hamingju sem innviðis klósettkvillar gætu valdið. Ennig aðstoða trefjar við að halda átvaglinu "sáttu" í lengri tíma. -> gulrætur, avocado, brokkolí, spínat, sætar kartöflur...
- Folic sýra hjálpar blóðinu að útbúa rauð blóðkorn. Talað er um að konur sem eru að reyna að verða ófrískar eða eru nýlega orðnar ófrískar ættu að taka folic sýruna inn til að minnka líkur á "neural tube defect" - heili og mæna fósturs ná ekki að þroskast að fullu -> blómkál, spínat, brokkolí, aspas...
- A vítamín fyrir ónæmiskerfið, sjón, frjósemi og verjast hvurslags sýkingum -> gulrætur, sætar kartöflur, spínat, grænkál...
- E vítamín hjálpar til við að "vernda" A vítamínið og hindrar t.d. oxun kólesteróls = minnkar líkur á blóðtppa. E vítamín er uppleysanlegt í fitu og skal því neyta með fituríkum matvælum svo þarmarnir taki það betur upp -> Hægt að taka inn olíur, grænmetisolíur. Canola-, sólblóma-, sesamolíu... nú eða t.d. hveitikím eða hvietikímsolía. Hafrar, hnetur, kjúklingabaunir (halló hummus), linsubaunir.
- C vítamínið fyrir ónæmiskerfið, sár og skurði (vörn gegn bakteríum), góma og tennur. Aðstoðar við inntöku járns sem kemur úr grænmeti (ekki kjötmeti). Aðstoðar eina af þeim 20 aminósýrum sem við þurfum til að byggja upp prótín. Ákkúrat þá krúttarlaegu aminósýru sem aðstoðar prótínið kollagen sem er hluti sina og brjósks sem þolir átök. -> Brokkolí, kartöflur, rauð paprika, spínat, gærnmeti með blaðgrænu...
Flottur hádegisdiskur. Próteinið mitt í hádeginu í dag var svo hreint ómyndað gleðiKea með fræjum og smá kanil, rétt fyrir crunch og kram.
Svo flottir litir!
Ohh.. ég öölska svona fínt, ferskt grænmeti! Eins og listaverk - get svo svarið það.
Matur og drykkur | Breytt 24.9.2010 kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)







