Allt og ekki neitt

Skírn, leti, útvarpsviðtal og matur þess á milli! Þið verðið að afsaka blogghallæri síðustu daga - það er svo assgoti mikið rót á átvaglinu þessa stundina!

En hvað er búið að gerast? Hvað er nýtt í fréttum? Hverjir fengu sér afgangs brúðartertu? Pönnsur framleiddar á mánudegi? Borðaði einhver eggjahvíturnar mínar? Súkkulaðið búið?

Ernan mín skírði litla kút á laugardaginn síðasta. Lárus Jensson Blöndal - afskaplega virðulegt og fallegt nafn.

Lárus Jensson Blöndal

Hún skírði í höfuðið á pabba sínum, afanum til einskærrar hamingju og gleði. Mér þykir sá siður afskaplega góður og fallegur. Yndisleg athöfn haldin í heimahúsi og litli herramaðurinn eins og hugur manns allan tímann. Ég mætti galvösk um morguninn til að aðsoða við snittuskreytingar, laxaskurð og kökumall.

Heimagrafinn lax Pönnsur í bígerð

 

 

 

 

 

 

 

Svaðaleg maregnsterta Ég skal þrífa þetta!!!

 

 

 

 

 

 

 

Það má með sanni segja að veisluborðið hafi verið stórglæsilegt!

Glæsilegt skírnarhlaðborð

Náði reyndar ekki mynd af skírnatertunni sökum myndavélarþreytu!

Svakaleg rækju/krabbakjötsbrauðterta Svakalega vel skorinn lax á þessum snittum!

 

 

 

 

 

 

Rice crispies kransakakan sem féll saman Þetta er svaðalegasta rjóma-maregnskaramellukaka í heimi

 

 

 

 

 

 

Enn annað listaverk - og gott... gott listaverk Hamingjan sem ríkir á þessu borði er ólýsanleg

 

 

 

 

 

 

Á sunnudeginum brunaði átvaglið svo í viðtal - ójá - grautarviðtal á Kananum! Við skulum bara segja að það hafi verið mjög áhugavert og láta þar við sitja! Grin

Geir Ólafs og Eiríkur Jónsson

Tæknó

Geir Ólafs er samt sem áður velkominn hvenær sem er í graut til átvaglsins! Ég á gumsið til á lager!

Hádegismaturinn í dag var með eindæmum gleðilegur! Fiskur, grænmeti og grjón og mikið svakalega var fiskurinn vel heppnaður! Ohhh... það er svo gígantískt hamingjukastið sem undirrituð fær þegar bitið er í góðan fisk! Diskurinn líka afskaplega fríður - það verður bara að segjast!

Eðalfiskur og grjón í stíl

Eftir æfingu gleypti ég ómyndað súkk og kók og núna - ákkúrat..... núúúna er ég að japla á þessum dýrindis kjúlla, grænmeti og jújú, ómyndaðar möndlur í eftirrétt!

Bygg, brokkolí og sætar kartöflur Ásamt kjúlla

 

 

 

 

 

 

 

Þrír dagar í stuttu og laggóðu! Njótið kvöldsins snúðarnir mínir!


Bloggfærslur 1. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband